Menning

Slitförin er fallegasta bókarkápan árið 2017

Magnús Guðmundsson skrifar
Bókarkápurnar eru órjúfanlegur hluti af heildarupplifun þeirra sem kaupa og lesa bækur.
Bókarkápurnar eru órjúfanlegur hluti af heildarupplifun þeirra sem kaupa og lesa bækur.
Jólin eru ekki bara hátíð barnanna því þetta er líka árstími bókaútgefanda, rithöfunda og skálda að ógleymdum kápuhönnuðum. Bókarkápurnar eru nefnilega órjúfanlegur hluti af heildarupplifun þeirra sem kaupa og lesa bækur, þó svo að maður ætti auðvitað aldrei að dæma bók eftir kápunni.

Til gamans var því sett saman sveit sex smekkvísra álitsgjafa sem tók að sér að velja þrjár fallegstu og þrjár ljótustu bókarkápur jólafljóðsins í ár.

Sjá einnig:Ljótasta bókakápan 2017

Fallegasta bókarkápan 2017

1. sæti

Slitförin

Höfundur: Fríða Ísberg

Kápuhönnun: Luke Allan

Mynd á kápu: Dýrfinna Benita

Útgefandi: Partus

„Falleg mynd og fallegt letur sem tala vel saman. Það hefði verið hægt að skella nánast hvaða lit í bakgrunn og hún hefði gengið upp.“

„Ákaflega vel heppnuð kápa með fallegum litum og leturmeðferð. Teikningin minnir á kápu Kvennafræðarans á ómótstæðilegan hátt. Kraftmikil og örvandi kápa fyrir spennandi höfund.“

„Öflug samsetning þar sem mynd og letur tala vel saman. Þetta er ekki bara spurning um einhverja óræða fegurð heldur að vera bæði áberandi og smekkleg og það tekst hér.“

2. sæti

Elín, ýmislegt

Höfundur: Kristín Eiríksdóttir

Kápuhönnun: Halla Sigga

Útgefandi: JPV

„Úthugsuð, sensúal og hrollvekjandi kápa sem talast á við innihald og uppbyggingu í bókinni. Grænu litirnir brakandi og óvenjulegir. Svartur bakgrunnur myndar dýpt og leturgerðin á titlinum hressir mann.“

„Djörf, áferðarfalleg og eftirminnilegasta kápan þetta árið. Ég vil sökkva í þetta þétta, græn, blauta sóðafen Kristínar.“

3. sæti

Stofuhiti

Höfundur: Bergur Ebbi

Kápuhönnun: Bergur Ebbi og Halla Sigga

Útgefandi: Mál og menning

„Ég er sökker fyrir gult og svart og líka fyrir töff og svalt. Þetta er gult og svart og töff og svalt þannig að ég verð að fíla.“

„Þarna eignuðust minimalisminn og typpastælarnir fallegt afkvæmi. Þessi gula auðn heillar mig. Skilst hún sé, ásamt leturgerðinni, innblásin af Kraftwerk–umslagi. Þegar fólk vísar í þýskt tölvupopp er auðvelt að fá mig á vagninn. Svo gleður þessi æðislega ljósmynd af höfundi, sem gæti verið týndi Gallagher–bróðirinn sem er meiri fáviti en þeir Liam og Noel til samans.“

Álitsgjafar Fréttablaðsins: Berglind Pétursdóttir, Guðmundur Snær Guðmundsson, Haukur Viðar Alfreðsson, Kristín Gunnarsdóttir, Ólöf Skaftadóttir og Tyrfingur Tyrfingsson






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.