Skoðun

Um Plastbarkamálið

Ingólfur Bruun skrifar
Plastbarkamálið er athyglisvert fyrir margra hluta sakir og mörg eru fórnarlömb ítalska læknisins Paolo Macchiarini, sjúklingar, læknar og stofnanir. Að mati undirritaðs er Paolo það sem kallað er á ensku „con man“ eða það sem við getum kallað blekkingameistari, þ.e.a.s. aðili sem nær trausti samferðarfólks og nýtir sér það til blekkinga.

Tvö af fórnarlömbum Macchiarini eru Tómas Guðbjartsson læknir og Andemariam Beyene heitinn. Tómas var fórnarlamb Macchiarini sem læknir sem beittur var blekkingum til að stuðla að því að framkvæmd var aðgerð á mjög vafasömum forsendum ef grannt var skoðað. Andemariam var sjúklingur sem gaf samþykki sitt fyrir aðgerð á sjálfum sér sem var vafasöm og leiddi síðar til dauða hans.

Tómasi er nú legið á hálsi fyrir að hafa treyst ráðgjöf frá starfsfólki Karolinska sjúkrahússins en Macchiarini var starfsmaður þess. Ef Macchiarini tókst að blekkja kerfið hjá Karolinska hvernig átti þá Tómas og Andemariam að gruna að Macchiarini væri jafn óvandaður og síðar hefur komið í ljós? Það er auðvelt að setja sig í dómarasæti eftir á þegar staðreyndir máls liggja fyrir. Tvær af staðreyndum málsins eru þær að Karolinska treysti Macchiarini og Tómas treysti Karolinska. Mér hefði þótt fróðlegt að hitta lækni, áður en þetta mál kom upp, sem hefði vantreyst ráðgjöf og meðferð Karolinska.

Vegna málsins hefur Tómasi verið tímabundið vikið frá störfum. Þetta er miður. Íslenskt heilbrigðiskerfi hefur ekki efni á að setja til hliðar einn af sínum færustu læknum vegna þess að hann var blekktur til að samþykkja og taka þátt í aðgerð sem dró sjúkling að lokum til dauða. Ef um ásetning eða vítavert gáleysi hefði verið að ræða hjá Tómasi hefði tímabundin brottvikning horft öðru vísi við. Að mínu mati var hvorugu til að dreifa af hálfu hans í þessu máli. Gera á Tómasi kleift að snúa nú þegar aftur til fyrri starfa.

Í fyrri störfum mínum sem rannsóknarlögreglumaður kom ég að málum þar sem einstaklingum tókst að blekkja samferðarfólk sitt á undraverðan hátt. Jafnvel grand­varasta fólk hefur látið blekkjast. Þess vegna skyldi fara varlega að setja sig í dómarasæti í málum þar sem blekkingameistarar hafa náð sínu fram því áður en við vitum af getum við öll orðið fórnarlömb slíkra.

 

Höfundur er leiðsögumaður.




Skoðun

Skoðun

Þöggun

Guðbjörg Ása Jóns Huldudóttir,Margrét Kristín Blöndal,Margrét Rut Eddudóttir,Lukka Sigurðardóttir,Sigtryggur Ari Jóhannsson,Halldóra Jóhanna Hafsteins Âû skrifar

Sjá meira


×