Þjálfari hjá Liverpool með fyrirlestur á Íslandi Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 21. nóvember 2017 16:30 Steven Gerrard er einn þjálfara Liverpool. Vísir/Getty
Það verður Liverpool stemmning hjá Knattspyrnuþjálfarafélag Íslands 2. desember næstkomandi þegar KÞÍ heldur aðalfund sinn og fræðsluviðburð á sama tíma. Knattspyrnuþjálfarafélag Íslands ætlar að sameina fræðsluviðburð (fyrirlestur og sýnikennslu) og aðalfund félagsins en þetta er í fyrsta sinn sem það er gert. Þetta kemur fram á heimasíðu KSÍ. Leiðbeinandi fræðsluviðburðarins verður Michael Beale, yngriflokka þjálfari hjá Liverpool akademíunni. Michael hóf þjálfunarferil sinn hjá Chelsea, þar sem hann hann starfaði í rúm níu ár (2003-2012). Hjá Liverpool hefur hann starfað frá árinu 2012, að undanskildu nokkurra mánaða tímabili er hann starfaði hjá São Paulo í Brasilíu. Mikael er núverandi þjálfari yngstu leikmanna Liverpool, U6 til U9 ára. Michael ætlar í fyrirlestri sínum að fjalla um leikmannaþróun hjá Liverpool akademíunni og vera með eina verklega sýnikennslu. Akademían hjá Liverpool hefur verið annáluð fyrir að ala upp góða knattspyrnumenn. Dæmi um leikmenn sem komið hafa úr akademíu félagsins eru. Billy Liddell, Ronnie Moran, Ian Callaghan, Phil Thompson, Robbie Fowler, Steve McManaman, Michael Owen, Jamie Carragher, Steven Gerrard, Jon Flanagan og Raheem Sterling, ásamt mörgum öðrum. Ráðstefnugjald er FRÍTT fyrir félagsmenn sem greitt hafa árgjald KÞÍ en 3.000 kr. fyrir aðra. Skráning er hafin en hægt er að skrá sig fyrir fimmtudaginn 30. nóvember með því að senda tölvupóst á doribolti@hotmail.com með eftirfarandi upplýsingum: nafn, kennitala, tölvupóstfang og símanúmer.
Enski boltinn Fótbolti Íslenski boltinn Mest lesið Tárvot Ásta sátt í hjarta sínu með ákvörðunina Íslenski boltinn Dásamar Albert og segir hann ráða hver taki vítin Fótbolti Sakaður um að öskra „Frjáls Palestína, ég vona að þið deyið“ Fótbolti Mörkin úr Bestu: Sjáðu sturlað mark Emils frá miðju og Davíð bjarga stigi Íslenski boltinn Gylfi Þór ekki í hóp Vals í gær en á landsliðsæfingu í dag Íslenski boltinn Lést 26 ára gamall eftir baráttu við áfengi og þunglyndi Sport Martröð Pogba lokið en hvað tekur við? Fótbolti Gaf klárum boltastrák verðlaunin Fótbolti Þekkti þjálfarann og fékk því himnasendingu frá Reyðarfirði Íslenski boltinn „Bara lygarar og svindlarar sem segja að hann sé vandamálið“ Enski boltinn Fleiri fréttir Hætti á samfélagsmiðlum og hættir ekki að skora Onana haldið oftast hreinu Ofurvaramaðurinn Duran fær nýjan sex ára samning Næstu vikur gríðarlega mikilvægar fyrir Ten Hag „Bara lygarar og svindlarar sem segja að hann sé vandamálið“ Man United ekki byrjað verr síðan 1989 Hemp í sögubækurnar og Man City á toppinn Ten Hag: Erum allir á sömu blaðsíðu Ótrúleg endurkoma Brighton Forest fékk stig manni færri Markalaust á Villa Park Van Nistelrooy hræddur um að hann verði álitinn hafa stungið Ten Hag í bakið Markaskorarinn Kovačić: „Engir auðveldir leikir í þessari deild“ Óttast að Alisson sé frá næstu vikurnar Pickford bjargaði stigi Meistararnir lentu undir en unnu samt Skytturnar komu til baka gegn Dýrlingunum „Okkur er sama hvað öðrum finnst um okkur“ Liverpool með fjögurra stiga forskot á toppnum Sjáðu fáránleg mistök markvarðar Leeds Ratcliffe um Ten Hag: „Ekki mín ákvörðun“ „Þá er ég mjög heimskur þjálfari“ Samherji Stefáns Teits í átta leikja bann fyrir að bíta mótherja Trúir ekki skýringum og tippar á rifrildi við Rashford Eigandi Nottingham Forest ákærður af enska knattspyrnusambandinu Valinn í landsliðið í fyrsta sinn í sjö ár Holdafarsummæli Guardiola sem myllusteinn um háls Phillips Henry hélt að Saka yrði ekki það góður „Hann er klárlega magnaður þjálfari“ Leikmaður City handtekinn fyrir að stela síma Sjá meira