Fótbolti

Eva Banton í Selfoss | „Heillaðist af henni á vellinum í sumar“

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Eva Banton skrifar undir samninginn.
Eva Banton skrifar undir samninginn. Mynd/Knattspyrnudeild Selfoss
Nýliðar Selfoss í Pepsi deild kvenna 2018 hafa styrkt sig fyrir átökin næsta sumar en liðið hefur samið við miðjumanninn Eva Banton sem var einn af bestu leikmönnum 1. deildarinnar síðasta sumar.

 

Banton, sem er 23 ára gömul, er ekki ókunnug íslenskri knattspyrnu en hún lék með Tindastóli í 1. deildinni síðastliðið sumar og gekk svo í raðir Þróttar R. í júlíglugganum.  Hún er frá Bandaríkjunum og spilaði með háskólaliði Florida Tech áður en hún fór til Íslands.

Í lok sumars var hún kosin í úrvalslið ársins í 1. deild kvenna af þjálfurum og fyrirliðum deildarinnar, í kosningu Fótbolti.net.

„Ég er mjög spennt fyrir komandi keppnistímabili. Ég á von á því að ef við leggjum hart að okkur þá getum við fest okkur í sessi í Pepsi-deildinni. Eftir að hafa spilað gegn Selfossliðinu síðasta sumar er ég viss um að við eigum möguleika á að standa okkur vel í deildinni. Ef við spilum eins og lið þá munum við ná góðum árangri,“ segir Eva Banton í fréttatilkynningu frá Selfyssingum.

Eva Banton skoraði 1 mark í 9 deildarleikjum með Tindastól en var síðan með 2 mörk í 7 leikjum með Þrótti. Eitt marka hennar var á móti gömlu félögunum í Tindastól.

Alfreð Elías Jóhannsson, þjálfari kvennaliðs Selfoss, er mjög ánægður með komu Banton til félagsins:

„Ég heillaðist af henni á vellinum í sumar og er ótrúlega ánægður með að fá hana í okkar raðir. Hún kemur klárlega til með að styrkja okkur innan sem utan vallar. Þetta er hörkuleikmaður sem á eftir að smellpassa inn í umhverfið okkar hér á Selfossi,“ segir Alfreð í fyrrnefndri fréttatilkynningu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×