De Gea: Þeir sem spila ekki á Spáni gleymast Ástrós Ýr Eggertsdóttir skrifar 14. nóvember 2017 17:45 De Gea er aðal markvörður spænska landsliðsins vísir/getty
David de Gea, markvörður Spánar og Manchester Untied, hefur varað Kepa Arrizabalaga við því að yfirgefa heimalandið. Hinn 23 ára gamli Arrizabalaga er eitt mesta markmannsefni Spánar og hefur verið mikið orðaður við Spánar- og Evrópumeistara Real Madrid, en hann er á mála hjá Athletic Bilbao. De Gea er af mörgum talinn einn besti markmaður heims, en hann fór til United frá Atletico Madrid árið 2011. Hann hefur einnig verið mikið orðaður við Real, og var svo gott sem búið að ganga frá félagsskiptunum árið 2015 áður en þau duttu upp fyrir á síðustu stundu og hann skrifaði undir nýjan samning hjá enska liðinu. „Það er ekki fylgst eins mikið með leikmönnum eins og mér, sem yfirgefa Spán, eins og þeim sem spila heima. Fólk gleymir okkur,“ sagði de Gea á blaðamannafundi fyrir vináttulandsleik Spánar og Rússlands í kvöld. „Kepa er enn mjög ungur. Hann á langan feril fram undan, en hugurinn er á réttum stað. Þegar þú æfir með honum sérðu að hann er mjög góður. Hann er frábær markmaður.“ „Ég er einnig ungur og við erum hér fullir af áhuga fyrir því að hjálpa landsliðinu,“ sagði David de Gea.
Fótbolti HM 2018 í Rússlandi Mest lesið Meistarinn gæti þurft að slá út tvo nafna sína á leiðinni í úrslit Sport Látnir gista líka á æfingasvæðinu Enski boltinn 76ers sóttu sigur úr Garðinum Körfubolti Botnliðin eiga von og meistararnir geta fallið Fótbolti Risaleikur Wembanyama dugði ekki til Körfubolti Dagskráin í dag: Íslandsmeistarar og fótbolti Sport Fimm hlutu dóm fyrir ólætin í Amsterdam Fótbolti Amorim hissa á fólkinu í kringum Rashford Fótbolti „Besti íþróttamaður Íslands gleymdist“ Sport Orðinn pirraður á að ná ekki að bæta met og tíminn að renna út Sport Fleiri fréttir Látnir gista líka á æfingasvæðinu Fimm hlutu dóm fyrir ólætin í Amsterdam Botnliðin eiga von og meistararnir geta fallið Bayern heldur enn í vonina um að næla í Wirtz Coote ætlar ekki að áfrýja brottrekstrinum Amorim hissa á fólkinu í kringum Rashford Rooney og Lampard mætast í fyrsta sinn sem þjálfarar Segir slæmt gengi City ekki Haaland að kenna Liverpool sjö sinnum áður verið toppliðið um jólin Alex Iwobi bregður sér í jólasveinabúning og opnar ókeypis búð Ver jólunum í faðmi fjölskyldunnar og vonast eftir lóðasetti Músaskítur í leikhúsi draumanna Fjármálastjórinn hágrét þegar hann gekk frá uppsögninni Klopp sýndi Red Bull áhuga þegar hann var enn þjálfari Liverpool Manchester United skoðar Malasíuferð strax eftir tímabilið Tækifæri að opnast fyrir Benóný hjá Stockport Inter þremur stigum frá toppnum og með leik til góða Eftirmaður Amorim strax á útleið Svekkjandi tap hjá Alberti og félögum eftir að hafa komist yfir Landaði forstjórastarfi hjá Forest eftir að Rómverjar ruddu henni burt Nesta látinn fara eftir aðeins einn sigur í sautján leikjum Fasistakveðjur til ungs Mussolini vekja athygli Dauðþreyttur á sömu spurningum: „Fólk heldur að það sé hægt að ýta á takka“ Algjört áfall fyrir Arsenal og Saka „Ég hætti í landsliðinu þegar ég hætti í fótbolta“ Héldu í hefðina og köstuðu þúsundum bangsa inn á völlinn Entist ekki lengi í fyrsta þjálfarastarfinu „Allt er svo erfitt“ Látnir æfa á jóladag Mætir á leik í fyrsta sinn eftir að hjartað stoppaði Sjá meira