Skoðun

Samstaða foreldra aldrei mikilvægari

Bryndís Jónsdóttir skrifar
Fréttir af íslenska módelinu fara nú eins og eldur í sinu um heimsbyggðina. Hvernig tókst Íslendingum að minnka umtalsverða unglingadrykkju niður í nánast ekki neitt á nokkrum árum? Íslenskir skólastjórar fara til Singapore til að fræðast um það hvernig börn í Singapore ná svona góðum árangri á PISA-prófinu en fjölmiðlar frá Singapore koma til Íslands til að fræðast um öflugt forvarnastarf á Íslandi og íslenska módelið.

Hvað er íslenska módelið?

Íslenska módelið snýst um að ná til og virkja aðila í nærumhverfi barna. Foreldrar, skólar, íþróttafélög, félagsmiðstöðvar og aðrir sem vinna með eða að hagsmunum barna taka höndum saman til að stuðla að því að börn og ungmenni noti tíma sinn á uppbyggilegan hátt, í þeim tilgangi að draga úr áfengis- og/eða vímuefnanotkun.

Árangurinn sem náðist var engin tilviljun. Samstillt átak allra þessara aðila, aukin tækifæri barna- og ungmenna til tómstundaiðkunar og viðhorfsbreyting hjá foreldrum, allt þetta skipti verulegu máli. Aðgerðir voru byggðar á rannsóknum og vegna smæðar þjóðfélagsins gekk hratt fyrir sig að taka stöðuna, taka ákvörðun um aðgerðir og mæla síðan árangurinn.

Áfengisneysla hefur haldist nokkuð stöðugt lág en ýmsar aðrar hættur steðja að börnum og ungmennum í dag. Aukinn kvíði og þunglyndi meðal barna og ungmenna er áhyggjuefni og einnig má nefna skort á svefni, ofnotkun á tölvuleikjum og hömluleysi á samfélagsmiðlum.

Forvarnastarfi lýkur aldrei

Foreldrar í dag mega ekki sofna á verðinum og halda að gott ástand í forvarnamálum vegna íslenska módelsins vari að eilífu. Forvarnir eru eilífðarverkefni og nú sem aldrei fyrr er ástæða fyrir foreldra til að taka höndum saman og halda utan um börnin, bæði sín eigin og börnin í þeirra nærsamfélagi, bekknum, íþróttafélaginu og tómstundastarfinu.

Samstilltir foreldrar geta haft úrslitaáhrif þegar kemur að forvarnastarfi og því höfum við hjá Heimili og skóla lagt áherslu á að hvetja foreldra í bekkjum og árgöngum til samstarfs og samtals um uppeldisleg gildi og sameiginlegar reglur.

Foreldrasáttmáli Heimilis og skóla

Foreldrasáttmáli Heimilis og skóla hentar vel til þess að fá foreldra grunnskólabarna til að ræða saman. Hann er til í þremur útgáfum fyrir mismunandi aldur og tekur á málum eins og útivistartíma, einelti og samskiptum, aðgengi að efni á netinu, bekkjaranda, þátttöku foreldra, náminu, eftirlitslausum samkvæmum, neyslu tóbaks, áfengis og annarra vímuefna, svefni og næringu, allt í samræmi við aldur og þroska nemenda.

Foreldrasáttmálann er best að leggja fyrir í bekk eða árgangi á fundi foreldra þar sem sáttmálinn er ræddur og foreldrar skrifa síðan undir samþykki um að fara eftir þeim reglum sem þeir verða ásáttir um.

Hægt er að nálgast veggspjöld með sáttmálanum á skrifstofu Heimilis og skóla, ásamt ítarefni, án endurgjalds og einnig er hægt að prenta hann út af heimasíðu Heimilis og skóla www.heimiliogskoli.is. Sáttmálinn er á íslensku en er fáanlegur á pólsku á heimasíðunni.

 

Höfundur er verkefnastjóri hjá Heimili og skóla.




Skoðun

Skoðun

BRCA

Elín Íris Fanndal Jónasdóttir skrifar

Sjá meira


×