Skoruðu sigurmarkið sex mínútum eftir að Emil kom inn á | Sigurganga Napoli heldur áfram Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 29. október 2017 16:04 Emil og félagar komu til baka og unnu sigur á Atalanta. vísir/getty
Emil Hallfreðsson kom inn á sem varamaður þegar Udinese vann mikilvægan sigur á Atalanta, 2-1, í ítölsku úrvalsdeildinni í dag. Udinese er í 13. sæti deildarinnar. Udinese lenti undir á 29. mínútu en kom til baka og tryggði sér sigurinn með mörkum Rodrigos De Paul og Antonins Barak. Atalanta fékk gullið tækifæri til að jafna metin sex mínútum fyrir leikslok þegar liðið fékk vítaspyrnu. Bryan Cristante fór á punktinn en Albano Bizzarri, markvörður Udinese, varði spyrnu hans. Emil kom inn á sem varamaður á 62. mínútu. Sex mínútum síðar skoraði Barak sigurmark Udinese. Sigurganga Napoli heldur áfram en liðið vann 3-1 sigur á Sassuolo í dag. Allan, José Callejón og Dries Mertens skoruðu mörk Napoli sem er með þriggja stiga forskot á toppi deildarinnar. Lazio vann sinn sjötta leik í röð þegar liðið bar sigurorð af Benevento, 1-5, á útivelli. Hinn sjóðheiti Ciro Immobile skoraði eitt marka Lazio en hann er markahæstur í ítölsku deildinni með 14 mörk. Lazio er í 3. sæti deildarinnar með 28 stig, þremur stigum á eftir Napoli.Úrslitin í dag: Udinese 2-1 Atalanta Napoli 3-1 Sassuolo Benevento 1-5 Lazio Crotone 2-1 Fiorentina Sampdoria 4-1 Chievo Spal 1-0 Genoa
Ítalski boltinn Tengdar fréttir Juventus vann Milan og jók pressuna á Montella Gonzalo Higuaín skoraði bæði mörk Juventus í 0-2 sigri á AC Milan í ítölsku úrvalsdeildinni í dag. 28. október 2017 18:08 Mest lesið Littler yngsti heimsmeistari sögunnar Sport Salah staðfestir að þetta sé hans síðasta tímabil með Liverpool Enski boltinn „Þurfti að taka tvö leikhlé á fyrstu mínútunum” Körfubolti Hamilton gæti ekki verið spenntari fyrir komandi tímabili Formúla 1 Ólafur Guðmundsson til Noregs Fótbolti „Dreymir alla um að lyfta þessum bikar“ Sport Líklegast að heimaleikur Víkinga fari fram í Kaupmannahöfn Fótbolti Íslandsmeistarinn Andri Rafn áfram í röðum Breiðabliks Íslenski boltinn Brazell ráðinn til Vals Íslenski boltinn Ótrúlegur sigur lyfti Real á toppinn Fótbolti Fleiri fréttir Íslandsmeistarinn Andri Rafn áfram í röðum Breiðabliks Ólafur Guðmundsson til Noregs Líklegast að heimaleikur Víkinga fari fram í Kaupmannahöfn Ótrúlegur sigur lyfti Real á toppinn Brazell ráðinn til Vals Salah staðfestir að þetta sé hans síðasta tímabil með Liverpool Nýttu klásúlu í samningi Maguire Brann einnig rætt við Frey Salah henti Suarez úr toppsætinu Rashford ekki með til Liverpool og sagður lasinn Kahn gæti eignast fallið stórveldi Bjargaði æskufélaginu sínu Slot segir Man. Utd mun betra en taflan sýni „Það er betra að sakna á þennan hátt“ Segir Rashford hafa hafnað þremur tilboðum frá Sádi-Arabíu Börn Dagnýjar eftir á Íslandi: Blákaldur raunveruleikinn á fyrsta degi Fékk stóra sekt fyrir að faðma konu Gísli Gottskálk eftirsóttur í Póllandi Íslandsmeistarinn Telma á leið til Skotlands Ancelotti vildi ekki tjá sig um Trent Berglind Björg í raðir Breiðabliks Fullt af leikjum fyrir páska og langt hlé hjá konunum Segir The Sun flytja falsfréttir: „Þetta er að verða algjört rugl“ Hafa aldrei tapað þegar Jesus skorar Missir af stórleiknum vegna innvortis blæðinga Fyrrum landsliðsþjálfarinn aðlaður af konungi Mark ársins strax á fyrsta degi? „Ekki auðvelt að spila fyrir stórt félag eins og Arsenal“ Hákon Rafn á bekknum þegar Skytturnar skutust í annað sætið Willum Þór lagði upp þegar Birmingham tapaði stigum Sjá meira
Juventus vann Milan og jók pressuna á Montella Gonzalo Higuaín skoraði bæði mörk Juventus í 0-2 sigri á AC Milan í ítölsku úrvalsdeildinni í dag. 28. október 2017 18:08