Lífið

Ed Sheeran handleggsbrotinn eftir að ekið var á hann

Birgir Olgeirsson skrifar
Ed Sheeran
Ed Sheeran Vísir/Getty
Breski tónlistarmaðurinn Ed Sheeran var fluttur á spítala nú í morgun eftir að hafa handleggsbrotnað í umferðarslysi. Breskir fjölmiðlar segja ökumann hafa ekið á Sheeran sem var hjólandi í borginni London

Er vitnað í skrif ástralska plötusnúðarins DJ Smallzy sem segir Sheeran hafa handleggsbrotnað í slysinu. 

Sheeran átti fyrir höndum tónleikaferð um Asíu og gæti því þetta slys sett strik í reikninginn. Hann virðist vera nokkur hrakfallabálkur en þess er skemmst að minnast að hann var á ferðalagi hér á landi og brenndist illa eftir að hafa stigið í hver.

Sjá einnig:Steig í hver og brenndist illa

Sheeran birti sjálfur mynd af sér á Instagram þar sem hann segist hafa lent í smá slysi og bíði eftir niðurstöðum lækna. 


Tengdar fréttir






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.