MH370: Óásættanlegt að finna ekki flugvélina Samúel Karl Ólason skrifar 3. október 2017 12:11 Þegar leitinni lauk hafði verið leitað á rúmlega 120 þúsund ferkílómetra svæði. Vísir/EPA
Ástralskir rannsakendur sem leitað hafa að malasísku flugvélinni MH370 segja óásættanlegt að finna ekki flugvélina. Hún hvarf árið 2014 á leið frá Kuala Lumpur til Peking með 239 manns um borð. Talið er að flugvélin hafi endað í Indlandshafi, sem er langt úr leið flugvélarinnar en ekkert er vitað um hvað gerðist um borð. Rannsakendurnir, sem skiluðu af sér lokaskýrslu sinni til yfirvalda í Ástralíu, segjast miður sín yfir því að flugvélin hafi ekki fundist. Þrátt fyrir mjög umfangsmikla leit. „Það er nánast ómögulegt og algerlega óásættanlegt á þessari öld þegar tíu milljónir farþega ganga um borð í flugvél á degi hverju. Að stærðarinnar farþegaflugvél geti horfið án þess að heimurinn geti sagt með vissu hvað varð um flugvélina og þá sem voru um borð.“ Þetta kom fram í yfirlýsingu frá nefndinni.Samkvæmt frétt BBC er leitin að MH370 ein sú stærsta í sögu flugsins. Eftir 52 daga leit á yfirborði sjávar brugðu rannsakendur á það ráð að leita á botni Indlandshafsins. Þegar leitinni lauk hafði verið leitað á rúmlega 120 þúsund ferkílómetra svæði.Þá hefur brak rekið á land á eyjum í Indlandshafi og á austurströnd Afríku, sem talið er koma úr flugvélinni. Leitarsvæðið í Indlandshafi var fundið með því að greina gervihnattagögn og hafstrauma. Leitinni hefur verið hætt og yfirvöld í Ástralíu segja að hún muni eingöngu hefjast aftur ef „trúverðug sönnunargögn“ finnist. Fram hefur komið að gögn fundust á tölvu flugstjóra flugvélarinnar sem sýna að hann hafi æft það að fljúga svipaða leið og talið er að MH370 hafi verið flogið. Í frétt Reuters segir að rannsakendur telji svo til gott sem ómögulegt að hægt verði að varpa ljósi á hvað gerðist án þess að finna flugvélina.
Flugvélahvarf MH370 Mest lesið Everest fullt af rusli sem mun taka fleiri ár að hreinsa Erlent Attal segir af sér og Melénchon vill stjórnarmyndunarumboð Erlent Egill syrgir brottvísun vina sinna Innlent Mikil uppbygging framundan á Borg í Grímsnesi Innlent Göngumaðurinn fannst látinn Innlent „Hreint og klárt vistmorð sem hér á sér stað“ Innlent Viðsnúningur í frönsku þingkosningunum Erlent Segir menn hafa skotið á gröfumann við vinnu Innlent Útkall vegna skútu sem strandaði í Eyjafirði Innlent Fannst fyrir botni Birnudals Innlent Fleiri fréttir Everest fullt af rusli sem mun taka fleiri ár að hreinsa Attal segir af sér og Melénchon vill stjórnarmyndunarumboð Viðsnúningur í frönsku þingkosningunum Frakkar ganga til sögulegra kosninga Sextán drepnir í loftárás á skóla Skortur á Ozempic hefur leitt til ólöglegrar starfsemi Nefna Mílanóflugvöll í höfuðið á Berlusconi Beryl lék Mexíkó grátt Umbótasinni bar sigur úr býtum í Íran Heitir því að klára baráttuna og sigra Trump Reeves skipuð fjármálaráðherra fyrst breskra kvenna Sunak segir af sér og hættir sem leiðtogi Tímamót í samningaviðræðum en enn langt í land Stórsigur Verkamannaflokksins á kostnað Íhaldsflokksins Kæmi mjög á óvart sigri annar flokkur en Verkamannaflokkurinn Verkamannaflokkurinn með stórsigur samkvæmt útgönguspám Baktalaði Biden í golfi: „Gamla niðurbrotna skítahrúga“ Kristrún og félagar sækja atkvæði fyrir Verkamannaflokkinn Enn má pissa í sjóinn á Costa del Sol Uppsagnir á Skaganum og Bretar kjósa nýja valdhafa Hryðjuverkamaðurinn í Ósló fær þyngsta dóm sögunnar Bretar ganga að kjörborðinu Neil Gaiman sakaður um kynferðisofbeldi Trump eykur forskotið og Biden ekki á förum Þvertaka fyrir að Biden sé efins um framboð Ákærður fyrir árásina á Mette Frederiksen Ákærðir fyrir að hafa fellt tré með banvænum afleiðingum Maður á þrítugsaldri stunginn til bana í Kaupmannahöfn Gert að eyða gjafasæði vegna mistaka við merkingu Beryl við það að skella á Jamaíku Sjá meira