Sport

Fyndið að heyra konu tala um hlaupaleiðir

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Það hafa fáir húmor fyrir niðrandi ummælum Cam Newton.
Það hafa fáir húmor fyrir niðrandi ummælum Cam Newton. vísir/getty
Cam Newton, leikstjórnandi Carolina Panthers, er búinn að gera allt vitlaust í Bandaríkjunum eftir að hafa talað niður til kvenkynsíþróttafréttamanns á blaðamannafundi.

Sú heitir Jourdan Rodrigue og starfar fyrir Charlotte Observer. Hún spurði Newton góðrar spurningar um hvað honum þætti um hlaupaleiðir útherja sinna. Þá fékk hún þetta svar.

„Það er fyndið að heyra konu tala um hlaupaleiðir,“ sagði Newton og glotti. Hann svaraði síðan spurningunni skilmerkilega.

Það breytti engu því allt fór á hliðina yfir fyrstu viðbrögðunum og Rodrigue var ekki skemmt.





Hún sagðist ekki sjá neitt fyndið við sína spurningu. Hún hafi bara verið að vinna sína vinnu. Því eru flestir sammála og Newton hefur fengið að heyra það.

Newton er ein stærsta stjarna NFL-deildarinnar og var valinn besti leikmaður deildarinnar fyrir tveim árum síðan.

NFL



Fleiri fréttir

Sjá meira


×