Erlent

Umdeilt fánalistaverk í Stokkhólmi sagt stuldur á íslensku hugverki

Atli Ísleifsson skrifar
Listakonan Eva Ísleifsdóttir telur ólíklegt að sænski listamaðurinn hafi séð verk hennar frá árinu 2008.
Listakonan Eva Ísleifsdóttir telur ólíklegt að sænski listamaðurinn hafi séð verk hennar frá árinu 2008.
Fánalistaverk listamannsins Mattias Norström, sem komið var upp á Sergelstorgi í miðborg Stokkhólms fyrr í vikunni, hefur vakið mikið umtal í Svíþjóð á síðustu dögum. Sænskir fjölmiðlar greina nú frá því að listaverkið kunni að vera stuldur á verki íslensku listakonunnar Evu Ísleifsdóttur frá árinu 2008.

Verkið á Sergelstorgi var vígt á þriðjudag og ber nafnið „Du gamla du fria“ sem er nafnið á þjóðsöng Svía. Stjórnmálamenn hafa sumir gagnrýnt verkið og var einn stjórnmálamaður úr röðum Kristdemókrata sem sagði það „óþarflega ögrandi“.

Eva segist í samtali við Vísi að sænskir fjölmiðlar hafi margir haft samband við sig vegna málsins í morgun. „Sænsku fjölmiðlarnir hafa verið að spyrja mig hvort að ég sé ekki brjáluð yfir því að hann hafi stolið hugmyndinni. Það er ekki rétt. Þetta verk sem ég gerði var árið 2008 í kringum og um hrunið hér á Íslandi. Það er allt annað í gangi þarna í Svíþjóð.“

Verkið var útskriftarverk Evu úr Listaháskólanum.Eva Ísleifsdóttir
Útskriftarverk úr Listaháskólanum

Verk Evu var útskriftarverk Evu frá Listaháskólanum og stóð á Klambratúni í um mánuð árið 2008. „Mig langaði til að lýsa leiðanum sem lá yfir þjóðinni þegar þetta var í gangi. Það voru ýmis leyndarmál að koma upp á yfirborðið og helsta tákn þjóðar er fáninn,“ segir Eva.

Hún segist þó ekki telja að sænski listamaðurinn hafi stolið hugmyndinni frá sér. „Við fáum mörg sömu hugmyndirnar. Ég held að hann hafi ekki séð verkið, þetta hefur ekki verið sýnt neins staðar nema þarna á Klambratúni. Verkið stóð þarna í mánuð úti á túni og fékk litla athygli.“

Eva segir að verkið á Klambratúni hafi verið eyðilagt að lokum. Telur hún að einhver hafi reynt að klifra upp stöngina. „Fáninn hvarf og fannst aldrei aftur. Það er sorglegt þar sem ég átti ekki fánann. Þannig að ef þessi fáni finnst þá vil ég fá hann til baka,“ segir Eva létt í bragði.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×