Frábær staða í fyrri hálfleik en annað tap á móti Ungverjum Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 20. ágúst 2017 13:42 Martin Hermannsson. Vísir/andri marinó
Íslenska körfuboltalandsliðið tapaði með fimmtán stigum, 82-67, í seinni æfingaleik sínum í Ungverjalandi og Ungverjarnir unnu því báða leikina með sama mun. Íslenska liðið stóð stig mun betur í dag en í gær og þá sérstaklega fyrstu sextán mínútur leiksins sem íslensku strákarnir unnu með þrettán stigum. 11-0 sprettur Ungverja í lok fyrri hálfleiks jafnaði leikinn og Ungverjarnir voru síðan mun sterkari í seinni hálfleiknum. Martin Hermannsson var atkvæðamestur í íslenska liðinu í leiknum með 17 stig og 78 prósent skotnýtingu (7 af 9) en Haukur Helgi Pálsson skoraði 12 stig. Átta af stigum Harðar Axel Vilhjálmssonar komu áður en Ungverjar skoruðu sitt fyrsta stig í leiknum en Hörður endaði með 10 stig. Jón Arnór Stefánsson gat ekki spilað með íslenska landsliðinu vegna meiðsla en hann hefur misst af sex af sjö leikjum liðsins í lokaundirbúningnum. Hörður Axel Vilhjálmsson skoraði átta stig á fyrstu þremur mínútum leiksins og íslensku strákarnir komust í 10-0 í byrjun leiks. Ísland komst síðan í 14-7 en var síðan bara fimm stigum yfir eftir fyrsta leikhlutann, 21-16. Íslenska liðið steig aftur á bensíngjöfina í öðrum leikhluta og var þrettán stigum yfir, 39-26, eftir þriggja stiga körfur frá Hlyni Bæringssyni þegar fjórar mínútur voru til hálfleiks. Ungverjarnir unnu hinsvegar síðustu fjórar mínútur hálfleiksins 11-0 og því munaði aðeins tveimur stigum á liðunum í hálfleik, 39-37. Haukur Helgi Pálsson (9 stig), Martin Hermannsson (8) og Hörður Axel Vilhjálmsson (8) voru atkvæðamesti í íslenska liðinu í fyrri hálfleiknum. Ungverjarnir tóku síðan frumkvæðið í þriðja leikhlutanum sem þeir unnu 20-9 og voru því komnir níu stigum yfir fyrir lokaleikhlutann, 57-48. Ungverska liðið bætti við forystuna í lokaleikhlutanum sem liðið vann 25-19 og þar með leikinn með fimmtán stigum. Íslenska liðið hafði þar með tapað síðustu 24 mínútum leiksins með 28 stigum, 56-28.Stig íslenska liðsins í leiknum: Martin Hermannsson 17 Haukur Helgi Pálsson 12 Hörður Axel Vilhjálmsson 10 Logi Gunnarsson 9 Hlynur Bæringsson 5 (7 fráköst, 3 stoðsendingar) Ægir Þór Steinarsson 4 Tryggvi Snær Hlinason 4 Elvar Már Friðriksson 3 Kristófer Acox 2 Brynjar Þór Björnsson 1 Pavel Ermolinskij skoraði ekki
EM 2017 í Finnlandi Mest lesið Samherji Stefáns Teits kærður fyrir meint bit Enski boltinn Ricciardo tapar sæti sínu hjá RB Formúla 1 Viktor Gísli öflugur gegn PSG Handbolti Engin vandræði þrátt fyrir að vera manni færri nær allan leikinn Fótbolti ÍBV og Grótta með sigra Handbolti Andri Lucas lagði upp í óvæntu tapi Fótbolti Arsenal sneri dæminu sér í vil Fótbolti Amanda lagði upp á leið sinni í riðlakeppni Meistaradeildar Evrópu Fótbolti Andri Már spilaði stóran þátt í sigri Leipzig Handbolti Töpuðu með ellefu í Tékklandi Handbolti Fleiri fréttir Helena verður á skjánum í vetur Derrick Rose leggur skóna á hilluna Mögnuðu tímabili nýliðans Clark lokið: „Get orðið miklu betri“ Æfir eftir stæla þjálfarans og banna leikmenn í landsliðið Nóg að gera á skrifstofu Stjörnunnar Shabazz semur við Njarðvík Shaq í Stjörnuna Njarðvíkingar losa sig við Bandaríkjamanninn rétt fyrir mót Þarf ekkert að taka afa bak við hlöðu og skjóta hann Viktor aftur heim í Stjörnuna Clark slegin í augað í frumraun Woj-fréttin hættir hjá ESPN og snýr sér að öðru Bikarnum úthýst úr Höllinni: „Svekkt en skiljum ákvörðunina“ Martin gerður að fyrirliða Alba Berlin Áhorfspartí á Íslandi vekur athygli Boban kveður NBA og fer til Tyrklands Fjöldi íslenskra kvenna sá Caitlin Clark setja stigamet „Sem samfélag erum við að vakna“ Færir sig á milli liða á Suðurlandinu Njarðvík fær tvo Valin best þriðju vikuna í röð Gamli Boston Celtics miðherjinn segir að Jordan hafi aldrei unnið nein góð lið KR fær króatískan miðherja Keyrði niður körfuboltamann sem lést Frákastadrottningin spilar ekki meira á þessari leiktíð Sá besti í Lettlandi semur við KR Barkley hneykslast á smásálarlegum konum í kringum WNBA „Það verður ný og skrýtin tilfinning“ „Markmið hjá okkur að fá til okkar uppalda KR-inga“ Þórir mættur heim í KR Sjá meira