Fótbolti

Januzaj: Ætla að tileinka Van Gaal fyrsta markið mitt

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Adnan Januzaj og Louis van Gaal var ekki vel til vina þótt þeir séu hressir á þessari mynd.
Adnan Januzaj og Louis van Gaal var ekki vel til vina þótt þeir séu hressir á þessari mynd. vísir/getty
Adnan Januzaj segir að hann muni tileinka Louis van Gaal fyrsta markið sem hann skorar fyrir Real Sociedad.

Januzaj fékk fá tækifæri hjá Manchester United á meðan Van Gaal var við stjórnvölinn hjá liðinu. Hann segir að samstarf þeirra hafi gengið erfiðlega.

„Ef ég skora mark mun ég tileinka Van Gaal það,“ sagði Januzaj í samtali við AS.

„Ég vil ekki tala um hann en það vita allir um vandamálin í samstarfi okkar. Þetta var ekki auðvelt, það er mjög svekkjandi og erfitt þegar þú ert í svona stöðu,“ bætti Januzaj við.

Belginn sýndi góða takta á fyrsta og eina tímabilinu sem David Moyes stýrði United en náði ekki að fylgja því eftir. Tækifærunum fækkaði óðum og fyrri hluta tímabilsins 2015-16 var Januzaj lánaður til Borussia Dortmund.

„Ég fékk ekki mörg tækifæri til að spila. Ég eyddi miklum tíma á bekknum og við það hverfur sjálfstraustið og minni háttar meiðsli fara að láta á sér kræla,“ sagði Januzaj um Van Gaal-tímann.

„Ég byrjaði ekki oft og það er erfitt að blómstra í þannig aðstæðum. Stjórinn setti mig í stöður sem ég kunni ekki að spila. Einn daginn get ég vonandi þaggað niður í gagnrýnisröddunum.“

Januzaj var seldur til Sociedad fyrir átta milljónir punda í sumar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×