Fótbolti

Raiola: Messi þarf nýja áskorun til að sanna hversu frábær hann er

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Lionel Messi á enn eftir að skrifa undir nýjan samning við Barcelona.
Lionel Messi á enn eftir að skrifa undir nýjan samning við Barcelona. vísir/getty
Mino Raiola, umboðsmaðurinn umdeildi, segir að Lionel Messi verði að fá nýja áskorun til að sanna hversu frábær leikmaður hann er.

„Leikmaður eins og Messi verður prufa eitthvað nýtt með öðru félagi til að sanna sig,“ sagði Raiola við Marca.

Messi hefur leikið með Barcelona allan sinn feril og unnið allt sem hægt er að vinna með liðinu. Argentínumaðurinn á hins vegar enn eftir að skrifa undir nýjan samning við Barcelona.

Það hefur leitt til vangaveltna um að Manchester City sé hugsanlega tilbúið að borga riftunarverð í samningi Messi, litlar 276 milljónir punda.

Messi og félagar í Barcelona mæta Alavés í 2. umferð spænsku úrvalsdeildarinnar á laugardaginn.

Mino Raiola er umboðsmaður leikmanna eins og Paul Pogba og Zlatan Ibrahimovic.vísir/getty

Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×