Antonio Cassano segir að eiginkonan hafi bara verið að bulla Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 25. júlí 2017 23:00 Antonio Cassano. Vísir/Getty
Antonio Cassano er búinn að leggja fótboltaskóna upp á hillu. Er það hans lokaákvörðun? Við höldum það í bili að minnsta kosti. Ítalski framherjinn segir svo vera en hann hefur reyndar hætt við einu sinni í þessari viku. Antonio Cassano tilkynnti í gær að hann væri hættur í fótbolta en þetta var önnur slík yfirlýsing hans á innan við viku. Í byrjun júlí þá gerði hann samning við nýliða Hellas Verona en nú lítur út fyrir að hann spili aldrei fyrir félagið. Þegar fréttir bárust af því að Cassano væri aftur búinn að setja skóna upp á hillu í gær höfðu ítalskir fjölmiðlar það eftir eiginkonu hans að kappinn væri í raun að leita að öðru félagi. Nú hefur Cassano komið fram og leiðrétt þann misskilning. Eiginkonan Carolina Marcialis var bara að bulla þegar hún skrifaði inn á samfélagsmiðla að karlinn hennar væri ekki hættur í boltanum. „Þvert á það sem kom fram á samfélagsmiðli konu minnar þá vil ég nú koma fram til að koma mínum málum á hreint. Carolina hafði ekki rétt fyrir sér. Eftir að hafa hugsað vel um mína framtíð þá hef ég tekið endanlega ákvörðun. Antonio Cassano mun ekki spila fótbolta aftur,“ sagði Antonio Cassano í yfirlýsingu sinni. Antonio Cassano tókst því í sömu yfirlýsingu að tala um sig í þriðju persónu og kenna konunni um fölsku fréttir gærdagsins.
Ítalski boltinn Mest lesið Sveindís fær engar skýringar: „Ég hef greinilega ekki verið í uppáhaldi“ Fótbolti Martin: „Fór rosalega fyrir brjóstið á mér að heyra það“ Körfubolti „Ég trúi þessu varla“ Sport „Ef þeir fá ekki gul spjöld halda grófu brotin bara áfram“ Fótbolti Utan vallar: Pedersen ætti að vera þjóðhetja Körfubolti Gylfi orðinn Víkingur Íslenski boltinn „Hún er búin að vera algjör klettur í þessu öllu“ Körfubolti United hættir að bjóða upp á frían hádegismat Enski boltinn Carragher kallaði Ferdinand trúð Enski boltinn Þolinmæðin á Højlund nánast á þrotum Enski boltinn Fleiri fréttir Gylfi orðinn Víkingur Ætla að stoppa Sveindísi og keyra yfir Ísland Þolinmæðin á Højlund nánast á þrotum Carragher kallaði Ferdinand trúð United hættir að bjóða upp á frían hádegismat Galatasaray sakar Mourinho um rasisma „Erfiðleikar utan vallar“ hafa styrkt spænsku stelpurnar „Ef þeir fá ekki gul spjöld halda grófu brotin bara áfram“ Sveindís fær engar skýringar: „Ég hef greinilega ekki verið í uppáhaldi“ Endurkomukóngarnir í Leeds með fimm stiga forskot á toppnum Valsmenn settu sex gegn Grindavík „Danska“ félagið í MLS sigraði meistarana í fyrsta leik Gísli og félagar með fullt hús stiga Hélt að „spilling“ þýddi eitthvað annað og dregur ummælin til baka Jóhann byrjaði og Kurt Zouma kom inn af bekknum í sigri Al Orobah Aftur hópuppsögn hjá Man. Utd Hundur í Messi: Kleip í háls aðstoðarþjálfara Sturridge vildi að Guardiola setti Haaland inn á í hálfleik Metin sex sem Salah setti í gær Fyrsta barnabarn Cantona heitir Cesar Gerrard orðaður við endurkomu til Rangers Liðsfélagi Alberts laus af spítala „Titilbaráttan er búin, Liverpool verður meistari“ „Verður besta tímabil sem við höfum séð frá leikmanni“ Özil búinn að finna sér nýjan starfsvettvang „Spiluðum mjög vel í dag“ Dómara refsað vegna samskipta við Messi Orri og félagar blanda sér í Evrópubaráttuna Góðir útisigrar hjá PSG og Juventus „Við þurfum annan titil“ Sjá meira