Skoðun

Þekkir ráðherra eigin stefnu?

Kolbeinn Óttarsson Proppé skrifar
Þorsteinn Víglundsson velferðarráðherra gerði mér þann heiður að svara skrifum mínum á þessum vettvangi í síðustu viku. Þorsteinn er ósáttur við að ég skuli benda á að ríkisstjórn hans hugi ekki fyrst og fremst að þeim sem verst hafa það.

Þorsteinn virðist reyndar eitthvað misskilja grein mína, þar sem hann segir mig telja „að við völd sé ríkisstjórn sem ætli sér ekki að bæta kjör þeirra verst settu.“ Ekki einu sinni núverandi ríkisstjórn mundi vera svo ósvífin að gera ekkert fyrir þau verst settu. Það að ætla að gera eitthvað, segir hins vegar ekkert um hverjar áherslurnar eru.

Stjórnmál snúast að stórum hluta til um forgangsröðun og hvergi birtist forgangsröðun núverandi ríkisstjórnar betur en í nýsamþykktri fjármálastefnu. Þar hefur ríkisstjórnin lagt línurnar fyrir næstu fimm ár. Miðað við orð Þorsteins vaknar sú spurning hvort ráðherra þekki ekki stefnu eigin ríkisstjórnar.

Því hvað er þar að finna? Jú, þak er sett á ríkisútgjöld þannig að þau verða að vera ákveðið hlutfall af vergri landsframleiðslu. Sem sagt, dragist landsframleiðsla saman verður að draga úr ríkisútgjöldum. Með öðrum orðum er gert ráð fyrir að efnahagslífið bólgni áfram út, gerist slíkt ekki þarf einfaldlega að draga úr ríkisútgjöldum.

Þorsteinn segir að velferðin sé í forgangi hjá núverandi ríkisstjórn og kemur m.a. inn á bótakerfið. Í því samhengi er ágætt að skoða hækkun lífeyris almannatrygginga í fjármálaáætlun ríkisstjórnarinnar, en áætlað er að hún verði á bilinu 3,1 til 4,8% á tímabilinu 2018 til 2022. Og hvað þýðir það? Jú, ef við gefum okkur 4,8% hækkun þá þýðir það að óskertur örorku- og endurhæfingarlífeyrir mun hækka í um 239 þúsund krónur á mánuði í byrjun árs 2018. Og það, kæri Þorsteinn, er ekki nóg.

Ríkisstjórnin ætlar hins vegar ekki að beita skattkerfinu sem jöfnunartæki. Að láta þau sem betur hafa það leggja meira til samneyslunnar. Að afla tekna til að bæta hag þeirra verst settu. Það væri alvöru velferð.

Höfundur er þingmaður Vinstri grænna




Skoðun

Skoðun

Þöggun

Guðbjörg Ása Jóns Huldudóttir,Margrét Kristín Blöndal,Margrét Rut Eddudóttir,Lukka Sigurðardóttir,Sigtryggur Ari Jóhannsson,Halldóra Jóhanna Hafsteins Âû skrifar

Sjá meira


×