Menning

Leika á hljóðfæri sem sjaldan sjást hér á landi

Gunnþóra Gunnarsdóttir skrifar
Sólveig með hörpu og Sergio Coto Blanco með lútu.
Sólveig með hörpu og Sergio Coto Blanco með lútu.
„Ég verð með tónleika í Sigurjónssafni á Laugarnestanga annað kvöld, þriðjudag, ásamt kostaríska lútuleikaranum Sergio Coto Blanco,“ segir Sólveig Thoroddsen hörpuleikari og heldur áfram. „Þar munum við leika á hljóðfæri sem sjást sjaldan hér á landi, sumsé ítalska þríraða hörpu, endurreisnarlútu og teorbu sem er bassalúta. Þetta eru endurgerðir af gömlum hljóðfærum.“ 

Á efnisskránni verður tónlist frá endurreisnar- og snemmbarokk tímanum, að sögn Sólveigar. „Við ætlum að spila upp úr enskum lútuhandritum frá 16. öld og líka verk eftir Bellerofonte, Castaldi, Giovanni Girolamo Kapsberger, Joan Ambrosio Dalza og fleiri snillinga sem voru uppi á þeirri sömu öld.“

Sólveig kveðst hafa lært hörpuleik hér á landi hjá Marion Herrera og Sophie Schoon­jans en haldið utan til frekara náms við Royal Welsh Col­lege of Music & Drama í Cardiff haustið 2009.

„Ég kynntist þríraðahörpu hjá velskum hörpu­leik­ar­a og það vakti áhuga minn á eldri gerð­um hörp­u svo ég fór í meist­ara­nám í sögu­lega upp­lýst­um flutn­ingi á slík­ar hörp­ur í Brem­en í Þýska­landi. Þar útskrifaðist ég fyrir ári síðan og starf­a nú í Brem­en og ná­grenni með mis­mun­andi kammer­hóp­um.“

Tónleikarnir hefjast klukkan 20.30.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.