Matur

Í eldhúsi Evu: Grilluð tortilla pizza með risarækjum, rjómaosti og fersku salsa

Eva Laufey skrifar
Margir halda upp á þennan girnilega rétt.
Margir halda upp á þennan girnilega rétt. Eva Laufey

Í þáttunum Í eldhúsi Evu, sem sýndir eru á Stöð 2 á fimmtudögum, töfra ég fram ýmsar kræsingar. Hér má finna uppskrift að grillaðri tortilla pizzu með risarækjum, rjómaosti og fersku salsa.

Tortilla pizza

Tortillakökur

Hreinn rjómaostur

Risarækjur

Ólífuolía



Aðferð:

Smyrjið tortillakökur með hreinum rjómaosti, sáldrið rifnum osti yfir og kryddið til með salti og pipar. Raðið rækjunum yfir og sáldrið smávegis af ólífuolíu yfir.

Leggið tortilla kökuna á álpappír sem er smurður með ólífuolíu, grillið tortillapizzuna í örfáar mínútur eða þar til osturinn er bráðnaður og tortillakakan gullinbrún. Berið pizzuna fram með fersku salsa.



Hvítlauksrækjur

300 g risarækjur

2 – 3 msk ólífuolía

50 g smjör, brætt

2 hvítlauksrif

safi úr hálfri sítrónu

salt og pipar

1 msk smátt söxuð steinselja



Aðferð:

Skolið rækjurnar vel og þerrið, veltið síðan rækjunum upp úr ólífuolíu, smjöri, nýrifnum hvítlauk, salti, pipar og smátt saxaðri steinselju eða kóríander.

Þræðið rækjurnar því næst upp á grillspjót og grillið í 2 mínútur á hvorri hlið eða þar til rækjurnar eru eldaðar í gegn.



Salsa

12 kirsuberjatómatar

½ Rauð paprika

2 – 3 msk smátt saxaður vorlaukur

Ólífuolía

Safi úr hálfri límónu

1 lárpera

handfylli kóríander

salt og pipar



Aðferð:

Skerið öll hráefnin afar smátt og blandið saman í skál, kryddið til með salti og pipar.

Kreistið safa úr hálfri límónu yfir ásamt smávegis af ólífuolíu. Gott er að kæla salatið áður en þið berið það fram með pizzunni.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.