Lífið

Timberlake og Biel svamla um í íslenskri náttúrulaug

Anton Egilsson skrifar
Hjónin Justin Timberlake og Jessica Biel eru stödd á Íslandi um þessar mundir.
Hjónin Justin Timberlake og Jessica Biel eru stödd á Íslandi um þessar mundir. Vísir/AFP
Stórstjarnan og tónlistarmaðurinn Justin Timberlake er nú staddur á Íslandi ásamt eiginkonu sinni og leikkonunni Jessica Biel. Það virðist fara vel um stjörnuparið hér á landi ef marka má mynd sem Biel birti á Instagram reikningi sínum í gær.

Á myndinni má sjá Biel láta fara vel um sig í náttúrulaug með vínglas í hönd en Timberlake er þó hvergi sjáanlegur. Við myndina skrifar hún að hún sé að fagna Cinco de Mayo í náttúrulaug eins og alvöru illmenni úr Bond-myndunum. Í bakgrunni má svo sjá glitta í þyrlu sem áætla má að hjónin fari ferða sinna á. 

Þau Timberlake og Biel komu hingað til lands í síðustu viku og ferðast nú um landið. Bárust meðal annars fregnir af því um síðustu helgi að parið hefði heimsótt Bakarameistarann í Suðurveri þar sem þau gæddu sér á ýmsum kræsingum ásamt fylgdarliði sínu.

Þetta er ekki fyrsta heimsókn Timberlake til landsins en hann hélt eftirminnilega tónleika í Kórnum í Kópavogi í ágúst 2014 en um sextán þúsund manns voru viðstaddir tónleikana. 

Celebrating #CincoDeMayo in a geo-thermal pool like a real life Bond villain. Cheers!

A post shared by Jessica Biel (@jessicabiel) on


Tengdar fréttir






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.