Lífið

Pétur Jóhann stórhættulegur með samúræjasverðið og rekinn úr tíma

Stefán Árni Pálsson skrifar
Þriðji þátturinn af Asíska drauminum var á dagskrá Stöðvar 2 í gærkvöldi. Þar keppa þeir Pétur Jóhann Sigfússon og Sverrir Þór Sverrisson á móti Auðunni Blöndal og Steinda Jr.

Asíski draumurinn er framhald af Evrópska draumnum sem og Ameríska draumnum en þeir þættir voru sýndir á Stöð 2 á árunum 2010 og 2012.

Í Ameríska draumnum ferðuðust Auðunn Blöndal og Egill Gillz saman í liði ásamt Sveppa og Villa sem voru í hinu liðinu um Bandaríkin þar sem þeir leystu ýmsar skemmtilegar þrautir líkt og að láta löggu hlæja og að hafa saurlát á ógeðslegu almenningssalerni.

Í Evrópska draumnum tók Steindi svo við keflinu og ferðaðist um með Audda en Pétur Jóhann tók við keflinu í liði Sveppa og saman ferðuðust þeir félagar um Evrópu í sama tilgangi, að leysa þrautir og fá fleiri stig en hitt liðið.

Í þættinum í gær vakti eitt atriði sérstaka athygli þegar Pétur Jóhann og Sveppi áttu að fá kennslu í notkun á samúræjasverði. Það fór ekki betur en svo að Pétur var skammaður af meistaranum sjálfum. Hann var stórhættulegur á svæðinu.


Tengdar fréttir






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.