Umfjöllun og viðtöl: Keflavík - Tindastóll 86-80 | Keflvíkingar komnir með Stólana upp að vegg Guðmundur Steinarsson í TM-höllinni skrifar 19. mars 2017 22:30 Amin Stevens var með 35 stig og 16 fráköst. vísir/anton
Keflavík lagði Tindastól 86-80 í öðrum leik liðanna í úrslitakeppni Dominos-deildar karla í körfubolta í kvöld á heimavelli. Keflavík er komið með 2-0 forystu í einvíginu og er einum sigri frá sæti í undanúrslitum. Leikurinn í kvöld fór vel af stað, var hraður og töluvert skorað. Antonio Hester gaf tóninn með viðstöðulausri troðslu í upphafi leiks og fylgdi því eftir með 6 stigum til viðbótar. Hjá heimamönnum var það Amin Stevens sem dróg vagninn í stigaskorinu. Keflavík leiddi eftir 1. leikhluta 21-20. Í 2. leikhluta voru það heimamenn sem byrjuðu betur og náðu 15 stiga forystu. Þá tóku gestirnir leikhlé og fóru yfir málin. Það skilaði 10-0 áhlaupi gestanna frá Sauðárkróki. Staðan í hálfleik 45-38 fyrir heimamenn. Israel Martin þjálfari Tindastóls notaði mannskapinn sinn mikið í fyrri hálfleik, en allir leikmenn liðsins voru þá búnir að koma við sögu og spila góðan tíma. Á sama tíma voru heimamenn með hefðbundnara fyrirkomulag, spiluðu á sínu sterkustu mönnum og hvíldu þá þegar tími gafst til. Það hægðist töluvert á leiknum í seinni hálfleik. Um miðbik 3. leikhluta fóru hlutir að gerast, þriggja stiga skot fóru að detta niður hjá Stólunum á meðan hökti sóknarleikur Keflavíkinga. Geta heimamenn þakkað Amin Stevens fyrir að vera inn í leiknum á þessum tímapunkti. Í loka fjórðungnum voru það heimamenn sem byrjuðu betur en gestirnir úr Skagafirðinum aldrei langt undan. Þegar þarna var komið við sögu var búið að hægjast enn meira á leiknum og leikmenn farnir að gera fleiri mistök. Það fór svo að heimamenn í Keflavík fóru með sigur af hólmi í hörkuleik 86-80 og eru þar með komnir í 2-0 í einvíginu.Af hverju vann Keflavík? Heimamenn voru beittari í dag, það voru fleiri leikmenn klárir í slaginn en hjá Tindastól. Það er komin úrslitakeppni og þá þýðir ekkert að ætla byrja leikinn einhverjum mínútum eftir að hann er byrjaður. Svo verður að minnast á stuðninginn sem Keflavík fékk í kvöld. Fullt hús, sungið, trommað og klappað allan tímann, löngu fyrir leik og enn þegar undiritaður yfirgaf íþróttahúsið. Svona stuðningur skiptir sköpum í svona leikjum.Bestu menn vallarins Amin Stevens var magnaður sem fyrr, 35 stig og 16 fráköst segir allt sem segja þarf. Hörður Axel átti einnig góðan leik stýrði sóknarleik liðsins vel ásamt að spila hörkuvörn. Reggie Dupree og Guðmundur skiluðu líka flottum leik.Tölfræði sem vakti athygli Skotnýting Tindastóls í leiknum var ekki góð, 25% í 3ja stiga og 55% fyrir innan þriggja stiga línuna. Svo má setja stórt spurningamerki við það hvernig Israel Martin dreifði leiktímanum á leikmenn liðsins. Að hann skuli ekki nota sitt besta lið lengur en hann gerir vekur upp spurningar, því ekki er álagið það mikið að menn geti ekki spilað eins mikið og þurfa þykir.Hvað gekk illa? Tindastól gekk illa komast almennilega inn í leikinn. Gestirnir voru einhvern veginn alltaf skrefi á eftir, þó svo að það hafi ekki munað miklu á liðunum þá má segja að leikurinn hafi ekki náð að vera nægilega spennandi. Um leið og Stólarnir voru við það að ná heimamönnum þá náði Keflvíkingar 2 – 3 sóknum og auka þannig muninn aftur. Magnús Már Traustason var ekki líkur sjálfum sér í kvöld. Hann fór frá því að skora 33 stig í fyrsta leiknum í 0 stig í þessum leik og munar um minna. Keflavík verður að fá framlag frá honum í næsta leik ef Keflavík ætlar ná í annan sigur á Króknum.Keflavík-Tindastóll 86-80 (22-21, 23-17, 19-22, 22-20)Keflavík: Amin Khalil Stevens 35/16 fráköst, Hörður Axel Vilhjálmsson 22/4 fráköst/6 stoðsendingar, Guðmundur Jónsson 18/5 fráköst, Ágúst Orrason 6, Reggie Dupree 5/4 fráköst, Magnús Már Traustason 0/5 fráköst.Tindastóll: Antonio Hester 26/11 fráköst, Pétur Rúnar Birgisson 17, Christopher Caird 10/5 fráköst, Friðrik Þór Stefánsson 9, Viðar Ágústsson 4, Finnbogi Bjarnason 4/4 fráköst, Helgi Freyr Margeirsson 3, Hannes Ingi Másson 3, Helgi Rafn Viggósson 2, Björgvin Hafþór Ríkharðsson 2.Bein lýsing: Keflavík - Tindastóll Friðrik Ingi: Þurftum að hafa mikið fyrir þessum sigri Friðrik Ingi Rúnarsson, þjálfari Keflvíkinga, var kátur eftir leikinn þegar blaðamaður Vísis hitti á hann. Keflvíkingar eru komnir með 2-0 forystu í einvíginu, aðspurður hvort þetta væri óskastaða sagði Friðrik Ingi: „Það þarf að vinna 3 leiki og við búnir að vinna 2 þannig að við erum komnir nær takmarkinu,“ sagði Friðrik Ingi og bætti við: „Mér fannst við pínu kærulausir eftir frábæran kafla í fyrri hálfleik þar sem við náum góðum tökum á leiknum, þá fannst mér við hleypa þeim óþarflega nálægt okkur. Það ekkert ólíklegt í svona leikjum að lið skiptist á að taka áhlaup og það þarf styrk til að klára svona leiki,“ bætti Friðrik Ingi við. Keflavík var skrefi á undan mest allan leikinn í kvöld og þegar litið er til baka þá var sigurinn kannski þægilegur. „Ég held að hann sé mun erfiðari og torsóttari en hann lítur út fyrir að vera. Við vorum með ákveðið forskot en þeir voru allann tímann nartandi í hælana og sérstaklega þegar leið á seinni hálfleikinn og við þurftum að hafa mikið fyrir þessu og halda fókus,“ sagði Friðik Ingi. Magnús Már Traustason, leikmaður Keflavíkur, átti frábæran leik fyrir norðan og skoraði þá 33 stig en hann skoraði ekki stig í kvöld. Þegar Friðrik Ingi var spurður út í hans frammistöðu í kvöld sagði hann: „Þetta er bara partur af þessu, við erum með þannig lið menn stíga upp í ákveðnum leikjum og svo aðrir næst. Hann [Magnús Már] fann sig bara ekki í dag. Þeir pössuðu hann mjög vel og þá opnaðist fyrir aðra.“ Stuðningurinn sem heimamenn fengu í kvöld minnti um margt á gömlu tímana. Hvernig fannst Friðrik Inga að hafa þessa stemmningu í kvöld? „Ég er mjög ánægður með stuðninginn og vona að einhverjir sjái sér fært að mæta norður í næsta leik, það voru bara tveir mættir síðast. En vonandi koma fleiri á miðvikudaginn“ sagði Friðrik Ingi að lokum.Pétur Rúnar: Það voru litlu hlutirnir sem fóru með þetta hjá okkur Pétur Rúnar Birgisson, leikstjórnandi Tindastóls, var daufur í bragði eftir leikinn í kvöld þegar Vísi náði tali af honum. Tindastóll ætlaði sér að vinna heimavöllinn til baka eftir tap fyrir norðan í fyrsta leik. „Já við komum inn í leikinn með það að markmiði að vinna leikinn og ná þannig heimavellinum aftur. En það gekk ekki, þeir byrjuðu betur en við og náðu áhlaupi þarna í 2. leikhluta og við náðum aldrei að komast nógu nálægt þeim eftir það vorum alltaf 5-10 stigum á eftir þeim,“ sagði Pétur Rúnar. Mínútunum var dreift vel á leikmenn Tindastóls í leiknum. Blaðamaður Vísis spurði Pétur Rúnar hvort það hafi mögulega haft áhrif á leikmenn liðsins að ekki hafi verið spilað á bestu mönnum liðsins eins mikið og hægt var. „Þjálfarinn talaði um það að það þyrfti að finna mínútur fyrir fleiri og það sást í hálfleik að þá voru 10 búnir að skora fyrir okkar á móti 5 hjá Keflavík,“ sagði Pétur Rúnar og bætti við: „Það voru litlir hlutir sem fóru með leikinn hjá okkur, hlutir eins og vítaskot og opinn skot í leiknum á meðan þeir eru að setja 3ja stiga skot í spjaldið og ofan í. Við erum með það breiðan hóp að það á ekki að skipta máli þótt við rúllum á hópnum,“ sagði Pétur Rúnar að lokum.
Dominos-deild karla Mest lesið Raygun er hætt: Vildi það ekki en verður að hætta Sport Myndir: Skiltin fuku um koll fyrir leikinn mikilvæga í Kópavogi Fótbolti Sjáðu klúðrið sem stjóri Villa kallaði „stærstu mistök“ sem hann hefur séð Enski boltinn Þurftu að sauma sautján spor í andlit Barcelona stráksins Fótbolti Slot henti bæði Mourinho og Ancelotti úr efsta sætinu Enski boltinn Hrósar Þorsteini í hástert: „Erum búnir að vera að bíða eftir honum“ Handbolti „Ég fékk bara fullt skotleyfi“ Handbolti CrossFit íþróttafólkið græddi á sigri Trump Sport McIlroy kemur „úr felum“ eftir óvenjulegar æfingabúðir Golf „Verður sérstök stund fyrir hana“ Körfubolti Fleiri fréttir „Verður sérstök stund fyrir hana“ „Þessi takki sem allir halda að Valur sé að fara kveikja á er ekki til“ Ekki spilað eina mínútu en dæmdur í bann Tommi með Nablann í bandi í Keflavík Klikkaði ekki á skoti í fyrsta leik og var stigahæstur „Þessi tími hefur liðið mjög hægt fyrir mér“ Pavel um varnarleik Keflavíkur: Á að særa stolt þitt Jordan-treyja seldist á 642 milljónir króna Fjórði stigahæsti kaninn en sá með lélegustu skotnýtinguna Tvær stórbrotnar körfur Ja Morant „Þurfum að passa upp á það að hafa gaman“ Vandræði utan vallar höfðu sitt að segja Popovich frá um óákveðinn tíma vegna veikinda Wendell Green rekinn frá Keflavík Sá langelsti stóð upp úr í Suðurlandsslag Erfitt hjá „sultunni“ Joel Embiid NBA-stjörnurnar þurftu að taka lestina á leikinn sinn Hannes í leyfi Uppgjörið: Tindastóll - Stjarnan 92-87 | Stólarnir fyrstir til að vinna Stjörnuna Alba Berlin í vandræðum og stórleikur Martins dugði ekki til sigurs Mættur til tengdó og gírar sig upp fyrir Síkið Framlenging Körfuboltakvölds: Njarðvík getur orðið Íslandsmeistari eins og Valur Tvö lið enn ósigruð og Thunder að eiga bestu byrjun í sögu félagsins Réðst á blaðamann vegna ummæla um látinn bróður hans og nýfæddan son „Það þarf svo margt að ganga upp til að þeir vinni“ Minnkuðu muninn um tuttugu stig á þremur mínútum gegn gamla liði Elvars Hafnar því að hafa elt Morris: „Ég var ekki með nein leiðindi“ Segir Friðrik hafa elt sig og áreitt eftir leik: „Mér fannst ég ekki örugg“ Uppgjörið: Keflavík - KR 94-88 | Langþráður Keflavíkursigur „Vildi sýna þeim að þeir væru ekki að fara ná þessu svona auðveldlega“ Sjá meira