Enski boltinn

Mesut Özil: Hann kallaði mig heigul fyrir framan alla

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Það var vitað að Mesut Özil og Jose Mourinho voru ekki miklir vinir þegar Þjóðverjinn lék Real Madrid á sínum tíma en ný hefur þýsku landliðsmaðurinn sagði frá samskiptum þeirra í nýrri bók.

Jose Mourinho var ekki ánægður með vinnuframlag Mesut Özil inn á vellinum og lét hann heyra það. Özil segir að Mourinho hafi kallað hann miður fallegu nafni.

Þetta kemur fram í nýrri sjálfævisögu Mesut Özil, „Die Magie des Spiels“ eða „Töfrar leiksins“, sem Özil er að gefa út þessa dagana. Þýska blaðið Bild fékk að birta brot úr bókinni en Guardian hefur þetta eftir þýska blaðinu.

Mourinho hellti sér víst yfir Mesut Özil í búningsklefanum hjá Real Madrid eftir ónefnda leik hjá spænska stórliðunu en þeir unnu saman hjá Real Madrid frá 2010 til 2013.

„Heldur þú að tvær fallegar sendingar séu nóg? Telur þú að þú sért svo góður að það sé nóg að þú gefir bara 50 prósent í þetta,“ skrifar Mesut Özil að Mourinho hafi sagt við hann í búningsklefanum fyrir framan alla í liðinu.

„Hann hikar en starir síðan á mig með þessu dökkbrúnu augum sínum. Ég stari á móti. Við erum eins og tvær boxarar fyrir fyrstu lotu í boxhringnum. Hann sýnir engar tilfinningar. Er bara að bíða eftir viðbrögðum frá mér. Hversu mikið hata ég hann á þessari stundu, ég sem elska Mourinho,“ lýsir Mesut Özil.

Jose Mourinho hélt síðan áfram að hrauna yfir Mesut Özil eftir að Þjóðverjinn henti Real Madrid treyjunni sinni á gólfið.

„Æi, ætlar þú að gefast upp núna. Þú ert svoddan heigull. Hvað viltu? Komast í fallegu heitu sturtuna. Viltu vera einn eða viltu sanna þig fyrir liðsfélögunum, fyrir stuðningsmönnunum og fyrir mér með því að sýna hvað þú getur,“ segir Özil frá í bókinni sinni.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×