Fótbolti

Suárez: Megum ekki missa okkur strax á fyrstu mínútu

Tómas Þór Þórðarson skrifar
Börsungar þurfa að skora fimm.
Börsungar þurfa að skora fimm. vísir/getty
Barcelona getur annað kvöld fallið úr keppni í 16 liða úrslitum Meistaradeildar Evrópu í fótbolta í fyrsta sinn í tíu ár. Liðið hefur komist að minnsta kosti í átta liða úrslit á hverri leiktíð síðan 2007/2008 og unnið keppnina þrisvar sinnum á þeim tíma.

Liverpool var síðasta liðið til að skella Börsungum í 16 liða úrslitum Meistaradeildarinnar en Evrópu-Rafa Benítez stýrði Liverpool-liðinu til sigurs gegn Katalóníurisanum í febrúar árið 2007. Liverpool fór alla leið í úrslit það tímabilið en tapaði fyrir AC Milan, 2-1.

Barcelona er 4-0 undir í einvígi sínu gegn Paris Saint-Germain í 16 liða úrslitum Meistaradeildarinnar að þessu sinni og þarf að skora fimm sinnum til að komast áfram. Spænsku meistararnir hafa sýnt klærnar heima fyrir eftir skellinn gegn PSG og verið að raða inn mörkum. PSG þarf því aðeins að passa sig á morgun.

Luis Suárez, framherji Barcelona, er ekki búinn að gefast upp enda veit hann að Börsungar geta skorað fjögur til fimm mörk á Nývangi á móti hverjum sem er.

„Fyrri leikurinn fór svakalega illa með okkur en það besta við fótboltann er að maður fær alltaf tækifæri til að bæta upp fyrir mistök sín. Við höfum verið að spila góðan fótbolta að undanförnu og skorað flott mörk. Það viljum við gera á miðvikudaginn,“ sagði Suárez á blaðamannafundi Barcelona í dag.

„Við hlökkum til leiksins. Það verður mikil áskorun fyrir okkur að snúa þessu einvígi við. Við erum meðvitaðir um að seinni leikurinn er bara 90 mínútur en við verðum samt að vera þolinmóðir. Við megum ekki tapa okkur. Við þurfum að vera ákveðnir en alls ekki missa okkur strax á fyrstu mínútu,“ sagði Luis Suárez.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×