Á annan tug lét lífið í troðningi fyrir knattspyrnuleik sunna karen sigurþórsdóttir skrifar 10. febrúar 2017 22:59 Leikurinn fór fram í Uige í Angólu. google
Að minnsta kosti sautján létu lífið og tæplega hundrað slösuðust í miklum troðningi við knattspyrnuvöllinn í borginni Uige í Angólu í kvöld. Fimm eru í lífshættu. Yfir átta þúsund manns hugðust fylgjast með stórleik Santa Rita de Cássia og Libolo í kvöld. Allt fór hins vegar úr böndunum þegar byrjað var að hleypa inn á völlinn því fólk ýmist ruddist í gegnum inngönguhliðið eða leitaði annarra leiða til þess að komast inn á völlinn.Breska ríkisútvarpið hefur eftir viðstöddum að fjölmargir hafi verið miðalausir og að leikvangurinn hefði aldrei rúmað allan þann fjölda sem freistaði þess að fylgjast með leiknum, en leikvangurinn tekur alls átta þúsund manns. Forstjóri spítalans í Uige segir í samtali við AFP að fólk hafi bókstaflega gengið ofan á hvoru öðru til þess að komast inn. Nú þegar hafi 76 manns leitað aðhlynningar, og 17 séu látnir. Þar af séu fimm alvarlega slasaðir. Ekki fylgir frétt AFP hvort leikurinn hafi farið fram, þó það verði að teljast ólíklegt.
Angóla Mest lesið „Hreint og klárt vistmorð sem hér á sér stað“ Innlent N1-mót og Dyrfjallahlaup í skítaveðri Innlent Allt að tuttugu stiga hiti í dag Veður Ölvaður ökumaður keyrði á umferðareyju og reyndi að flýja Innlent Eldur kviknaði inni á veitingastað í Ármúla Innlent Yfirgáfu skarkalann í borginni og gerðust ferðaþjónustubændur Innlent Tveir í haldi lögreglu vegna meintrar skotárásar Innlent Fannst fyrir botni Birnudals Innlent Miklar framkvæmdir á Kirkjubæjarklaustri fyrir unga fólkið Innlent Lögregla vopnaðist og skotvopn haldlagt Innlent Fleiri fréttir Sextán drepnir í loftárás á skóla Skortur á Ozempic hefur leitt til ólöglegrar starfsemi Nefna Mílanóflugvöll í höfuðið á Berlusconi Beryl lék Mexíkó grátt Umbótasinni bar sigur úr býtum í Íran Heitir því að klára baráttuna og sigra Trump Reeves skipuð fjármálaráðherra fyrst breskra kvenna Sunak segir af sér og hættir sem leiðtogi Tímamót í samningaviðræðum en enn langt í land Stórsigur Verkamannaflokksins á kostnað Íhaldsflokksins Kæmi mjög á óvart sigri annar flokkur en Verkamannaflokkurinn Verkamannaflokkurinn með stórsigur samkvæmt útgönguspám Baktalaði Biden í golfi: „Gamla niðurbrotna skítahrúga“ Kristrún og félagar sækja atkvæði fyrir Verkamannaflokkinn Enn má pissa í sjóinn á Costa del Sol Uppsagnir á Skaganum og Bretar kjósa nýja valdhafa Hryðjuverkamaðurinn í Ósló fær þyngsta dóm sögunnar Bretar ganga að kjörborðinu Neil Gaiman sakaður um kynferðisofbeldi Trump eykur forskotið og Biden ekki á förum Þvertaka fyrir að Biden sé efins um framboð Ákærður fyrir árásina á Mette Frederiksen Ákærðir fyrir að hafa fellt tré með banvænum afleiðingum Maður á þrítugsaldri stunginn til bana í Kaupmannahöfn Gert að eyða gjafasæði vegna mistaka við merkingu Beryl við það að skella á Jamaíku Sá fyrsti sem kallar eftir því að Biden stígi til hliðar Friðhelgin stórauki vald forsetans Ákvörðun um refsingu Trump frestað 87 talin af vegna troðnings Sjá meira