Lífið

Verð­launa­rit­höfundur laumaðist til að á­rita bækur í Austur­stræti

Stefán Ó. Jónsson skrifar
Neil Gaiman er mikilsmetinn.
Neil Gaiman er mikilsmetinn. Vísir
Hinn margverðlaunaði rithöfundur Neil Gaiman er staddur á Íslandi þessa dagana til þess að taka upp kynningarefni fyrir þáttaröðina American Gods sem væntanleg er á þessu ári.

Hann hefur leyft aðdáendum sínum að fylgjast með því á Twitter hvað á daga hans hefur drifið hér.

Starfsmenn Pennans Eymundsson mega búast við því að aðdáendur hans muni fjölmenna í búðina á næstunni. Gaiman ljóstraði því upp í gær að hann hefði farið þangað og áritað nokkrar bækur sínar án þess að spyrja hvorki kóng né prest.

„Ég gæti hafa laumað mér hingað inn og skrifað nafnið mitt í fullt af bókum,“ segir Gaiman og deilir mynd af versluninni á Twitter-síðu sinni.

Neil Gaiman hefur skrifað fjölda bóka og teiknimyndasagna í gegnum árin sem margar hverjar hafa ratað á metsölulista og rakað að sér viðurkenningum.

Þættirnir American Gods byggja á samnefndri bók Gaiman og verða frumsýndir í apríl næstkomandi.

Tíst Gaiman má sjá hér að neðan.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.