Viljum leggja okkar af mörkum Gunnþóra Gunnarsdóttir skrifar 7. febrúar 2017 09:45 "Vonandi er fólk tilbúið að styðja við Landsbjörgu og njóta leiklistar í leiðinni,“ segir Þórey. Vísir/Daníel Rúnarsson „
Leitin að Birnu og lát hennar snerti okkur öll sem stöndum að sýningunni Andaðu, þótt við héldum okkar striki og ynnum að uppsetningunni í Iðnó meðan á atburðum stóð. Okkur langar að leggja okkar af mörkum og allt sem kemur inn vegna sýningarinnar annað kvöld, miðvikudag, fer því til Landsbjargar. Iðnó gefur sitt og enginn er að taka laun,“ segir Þórey Sigþórsdóttir, leikstjóri leikritsins Andaðu. „Sýningin fjallar, að hluta til, um hvernig við tökum ábyrgð í lífinu. Það er því vel við hæfi að við tökum eitthvert skref í því að vera góðar manneskjur,“ segir Þórey. „Efnislega er það alveg í anda verksins þó að auðvitað geri maður aldrei nóg.“ Þetta verður 6. sýningin á Andaðu, verðlaunaleikriti eftir Duncan Macmillan. Dóttir Þóreyjar, Hera Hilmarsdóttir, þýddi það og er í öðru hlutverkinu af tveimur, hitt er í höndum Þorvaldar Davíðs Kristjánssonar. „Áhorfendur eru flugur á vegg hjá ungu pari og fylgjast með lífi þess og pælingum,“ segir Þórey. „Við höfum fengið sterk viðbrögð við sýningunni því hún hreyfir við fólki og fær það til að hugsa.“ Greinin birtist fyrst í Fréttablaðinu 7. febrúar 2017
Lífið Menning Mest lesið Dvaldi í tjaldi á hringtorgi þar til lögreglan kom Lífið Vann til margra verðlauna fyrir stól sem slær í gegn Tíska og hönnun Lesbíska dragdrottningin sem er að sigra tónlistarheiminn Tónlist Starfsfólkið í fyrsta sæti og börnin í öðru Lífið Aukin lofthæð, Versace flísar, pottur og pool herbergi Lífið Akureyringar komast loksins á Prikið Lífið Tinna Brá og Ari Eldjárn færðu fertugsafmælið út á sjó Lífið Myndaveisla: Metfjöldi á opnunarhelgi Hjarta Hafnarfjarðar Lífið Hugmyndin var að kveikja bókstaflega í Emmsjé Gauta Tónlist „Með 40 prósent af óþarfa með mér og virðist ekki læra af því“ Tíska og hönnun Fleiri fréttir Fjöldamet á stærstu listasýningu í sögu Hornafjarðar „Hluti af heild sem við skiljum ekki“ Magnús Geir endurráðinn þjóðleikhússtjóri „Ef ég væri einmana myndi ég ganga í Sjálfstæðisflokkinn“ Myndaveisla: Níu líf of stórkostleg fyrir eftirsjá Þau eru tilnefnd til Ísnálarinnar í ár Hvað eigum við að kalla eiginmann forseta? Sjá meira