Erlent

Pútín situr á sér og bíður eftir Trump

Guðsteinn Bjarnason skrifar
Vladimír Pútín Rússlandsforseti og Barack Obama Bandaríkjaforseti á leiðtogafundi í Mexíkó árið 2012.
Vladimír Pútín Rússlandsforseti og Barack Obama Bandaríkjaforseti á leiðtogafundi í Mexíkó árið 2012. vísir/epa
Þegar Donald Trump tekur við forsetaembætti Bandaríkjanna þarf hann að taka afstöðu til þess hvort hann vilji halda áfram refsiaðgerðum gegn Rússum, sem Barack Obama kynnti vegna inngripa rússneskra tölvuþrjóta í bandarísku kosningabaráttuna.

Trump hefur hingað til ekki gert mikið úr ásökunum á hendur Rússum, sem hafi unnið gegn Hillary Clinton í kosningabaráttunni. Mikilvægara sé að horfa fram á við.

Nú segist Trump ætla að kynna sér þau gögn sem bandaríska alríkislögreglan FBI hefur lagt fram, þar sem fullyrt er að tölvuþrjótarnir hafi verið rússneskir og með tengsl við rússnesku leyniþjónustuna.

Obama ákvað að vísa 35 rússneskum stjórnarerindrekum úr landi. Sergei Lavrov utanríkisráðherra lagði síðan til að Rússar myndu svara í sömu mynt. Þeir geti ekki látið „móðgunum af þessu tagi ósvarað“ og ættu því að vísa 35 Bandaríkjamönnum úr landi.

Pútín ákvað hins vegar í gær að bíða átekta og vísa engum úr landi núna en halda því opnu hver viðbrögðin verða þar til Donald Trump tekur við af Obama 20. janúar.

„Við áskiljum okkur rétt til að grípa til gagnaðgerða,“ sagði Pútín í yfirlýsingu í gær. Hins vegar ætli hann sér ekki að fara niður á sama plan og Obama. Þvert á móti verði börnum allra bandarískra stjórnarerindreka í Moskvu boðið í áramótagleðskap.

„Við lítum svo á að þessi nýju óvinsamlegu skref fráfarandi Bandaríkjastjórnar séu ögrandi og til þess ætluð að grafa undan samskiptum Rússlands og Bandaríkjanna,“ sagði Pútín. „Þetta gengur tvímælalaust gegn grundvallarhagsmunum bæði Bandaríkjamanna og Rússa.“

Rússneska þingkonan Irina Jarov­aja sagði refsiaðgerðirnar vera hefnd Obama gegn bandarískum kjósendum: „Það skiptir ekki máli hve mörgum stjórnarerindrekum Obama vísar úr landi, það var hin árásargjarna og Rússafælna stefna hans sem bandarískir kjósendur höfnuðu.“

Þá sagði María Sacharowa, talskona rússneska utanríkisráðuneytisins, í færslu á Facebook að Obama hafi nú staðfest það sem hún og fleiri hafi sagt árum saman, að hann og ráðherrar hans séu „engin ríkisstjórn heldur samansafn utanríkispólitískra aumingja, sem eru fullir heiftar og skammsýnir“.

Fréttin birtist fyrst í Fréttablaðinu




Fleiri fréttir

Sjá meira


×