Fótbolti

Iker Casillas tók flott met af Xavi í kvöld

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Iker Casillas, markvörður Porto, varð í kvöld sá leikmaður sem hefur spilað flesta sigurleiki í Evrópukeppni meistaraliða.

Iker Casillas hélt marki sínu hreinu þegar liðsmenn Porto niðurlægðu Englandsmeistara Leicester City og unnu 5-0 sigur. Þetta var 97. sigurleikurinn sem Iker Casillas spilar í Meistaradeildinni á ferlinum.

Sigurinn færði Porto annað sæti riðilsins og þar með sæti í sextán liða úrslitum Meistaradeildarinnar.

Xavi var búinn að eiga metið yfir sigurleiki í nokkur ár eftir að hann tók það á sínum tíma af Raul Gonzalez.

Xavi fagnaði alls 96 sigrum með Barcelona-liðinu í Meistaradeildinni. Raul Gonzalez var á sínum tíma í sigurliði í 80 leikjum.

Flestir sigurleikir spilaðir í Evrópukeppni meistaraliða:

97 - Iker Casillas

96 - Xavi

86 - Cristiano Ronaldo

81 - RaulGonzalez

80 - Ryan Giggs

74 - Paolo Maldini

74 - Andres Iniesta

Iker Casillas.Vísir/Getty



Fleiri fréttir

Sjá meira


×