Ólafía Þórunn lék fyrsta hringinn á tveimur yfir pari Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 30. nóvember 2016 19:15 Ólafía með íslenska fánann. mynd/twitter-síða gsí
Ólafía Þórunn Kristinsdóttir, Íslandsmeistarinn í golfi, lék á tveimur höggum yfir pari á fyrsta keppnisdegi lokaúrtökumótsins fyrir LPGA-mótaröðina í Bandaríkjunum. Ólafía komst í gegnum fyrstu tvö stig úrtökumótanna og keppir nú ásamt 156 öðrum kylfingum um 20 laus sæti á sterkustu atvinnumannamótaröð heims. Ólafía fór rólega af stað í dag og var með fjóra skolla á fyrstu sjö holunum. Eftir fyrstu níu holurnar var hún á þremur höggum yfir pari. Ólafía náði sér betur á strik á seinni níu holunum og lék þær á samtals 35 höggum, eða á einu höggi undir pari. Hún fékk fugl á 11. holu og svo par á síðustu sjö holunum. Ólafía lék í heildina á tveimur höggum yfir pari og er sem stendur í 55. sæti.
Golf Mest lesið Harmur hrokagikksins Haaland Enski boltinn Þrír boðaðir í viðtal: Víkingar gáfu KSÍ grænt ljós á að ræða við Arnar Fótbolti Gary sem stal jólunum Enski boltinn Þakið ætlaði að rifna af Ally Pally eftir níu pílna leik Heta Sport Freyr einnig í viðtal og einn erlendur Fótbolti Tveir látnir úr sitthvorri áhöfninni í siglingakeppni í Sydney Sport Tapaði níu leggjum í röð eftir níu pílna leik og var sendur heim Sport Enginn verið jafn fljótur að tapa fjórum deildarleikjum Enski boltinn Telur daga McGregor í UFC talda Sport „Ég var að skjóta“ Enski boltinn Fleiri fréttir Charlie Woods fór holu í höggi í fyrsta sinn Tiger og sonur í forystu á feðgamótinu Verða að hafa fæðst sem konur til að fá að keppa á LPGA Vill verðlaunafé á Ryder Cup til að styrkja góð málefni Meiddur Tiger segist enn hafa eldmóðinn Fór holu í höggi yfir húsið sitt Vann hæsta verðlaunafé sem golfkona hefur fengið McIlroy skaut niður dróna „Orðinn þreyttur á Venna strax á fyrstu holu“ McIlroy kemur „úr felum“ eftir óvenjulegar æfingabúðir Golfstjarnan mætti á upp svið með Trump Kylfingur blindur á auga eftir golfbolta Sjá meira