Gott fyrir Guðmund að hann gat tekið þessa ákvörðun sjálfur Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 10. nóvember 2016 07:00 Guðmundur Guðmundsson fagnar Ólympíugullinu í Ríó. Vísir/EPA
Eftirmál Ólympíuleikanna í Ríó hafa verið óvenjuleg fyrir danska handboltalandsliðið. Eftir eina stærstu stund í danskri íþróttasögu, er handboltalandsliðið vann gull í fyrsta sinn á Ólympíuleikum, kom fljótt í ljós að ekki var allt með felldu innan herbúða landsliðsins. Skömmu eftir leikana bárust tíðindi þess efnis að óeining væri innan hópsins og að íþróttastjórinn Ulrik Wilbek, sem áður var þjálfari danska landsliðsins, hafi boðið leikmönnum upp á þann möguleika að reka Guðmund Guðmundsson úr starfi – og það á miðjum Ólympíuleikum. Ekkert varð af því en eftir að fréttin spurðist út dró Wilbek sig í hlé og hætti sem íþróttastjóri danska handknattleikssambandsins eftir áratuga starf fyrir sambandið og danskan handbolta. Í upphafi vikunnar var svo tilkynnt að samningur Guðmundar við sambandið, sem rennur út í sumar, verði ekki endurnýjaður að ósk Guðmundar. Tíðindin komu Andreas Kraul, íþróttafréttamanni danska ríkissjónvarpsins, ekki á óvart. Hann sá fyrir að það hefði verið erfitt fyrir Guðmund að halda áfram eftir allt sem á undan gekk.Vísir/EPAGullið var eins og þversögn „Þetta var allt saman mjög skrýtið eftir Ólympíuleikana. Það kom í ljós að það var heilmikið af vandamálum innanbúðar í liðinu og það virkaði á mann næstum því eins og þversögn að liðið hefði svo unnið gull í Ríó,“ segir Kraul. „Það gerði þetta allt saman flóknara. Gummi verður þó alltaf maðurinn sem skilaði danska handboltalandsliðinu stærsta sigrinum í sögu þess en var líka maðurinn sem var næstum því rekinn meðan á Ólympíuleikunum stóð,“ segir hann enn fremur. Kraul segir að ákvörðun Guðmundar um að hætta sé rétt. Það sé einnig ákvörðun sem hafi verið óumflýjanleg. „Það er gott fyrir Guðmund að hann geti tekið þessa ákvörðun sjálfur. Hann verður alltaf maðurinn sem færði Dönum Ólympíugull og hann er nú líka maðurinn sem getur hætt á eigin forsendum og sagt að nú vilji hann snúa sér að einhverju öðru.“Jafnaðarmenn í dönskum íþróttum Þrátt fyrir velgengnina í Ríó segir Kraul að það hafi verið byrjað að reyna á samband Guðmundar við leikmenn landsliðsins áður en það kom að þeirri keppni. „Við Danir getum stundum verið svolítið skrýtnir,“ segir Kraul í léttum dúr. „Það eru líka sósíaldemókratar [jafnaðarmenn] í dönskum íþróttum eins og annars staðar í Danmörku. Raddir allra eiga að heyrast, öllum á að líða vel og varamenn eiga líka að fá að taka þátt í leiknum. Við segjum svo ítrekað að við séum orðnir þreyttir á þessu viðhorfi og að við viljum fá alvöru þjálfara, eins og þekkist til dæmis í Þýskalandi – mann með ákveðna sýn og sterkar skoðanir. Einhvern sem gerir okkur að sigurvegurum.“ En þar með er sagan ekki öll sögð, eins og kom í ljós með ráðningu Guðmundar. „Það kemur svo í ljós að það eru margir ósáttir við að hafa ráðið erlendan þjálfara. Og það voru ekki allir ánægðir með störf Guðmundar,“ sagði Kraul enn fremur en Guðmundur er þekktur fyrir stífan undirbúning fyrir leiki sem einkennist af fundarhöldum og myndbandsklippum. „Þeir voru orðnir þreyttir á því, sem og að hver einasti andstæðingur var lofaður upp til skýjanna og hver einasti leikur sagður erfiður.“Vísir/GettyVildi Wilbek ögra leikmönnum? Kraul segir að leikmenn hafi átt frumkvæðið að því að ræða stöðu Guðmundar við Wilbek meðan á Ólympíuleikunum í Ríó stóð, þrátt fyrir að fyrstu fregnir danskra miðla hafi verið á þann veg að það hafi svo verið leikmennirnir sjálfir sem komu í veg fyrir það að Guðmundur hefði misst starfið. „Þeir fóru til sambandsins og sögðu að þetta væri ekki að virka. Wilbek spurði einfaldlega á móti hvort það væri vilji leikmannanna að reka hann. En þeir vildu ekki ganga svo langt. Þeir vildu hafa meira að segja um undirbúninginn og færa aðstoðarþjálfaranum meiri völd. En þeir vildu ekki byltingu.“ Eins og málið birtist almenningi í fjölmiðlum hefur virst sem svo að Wilbek og Guðmundur hafi verið á öndverðum meiði en Kraul segir að málið sé ekki svo einfalt. „Það má ekki gleyma því að það var Wilbek sem réð Guðmund á sínum tíma. Þetta er flóknara en svo að það sé hægt að benda á hver sé vondi aðilinn í þessu máli og hver sá góði. Wilbek er maður aðgerða og hann er líka maður sálfræðihernaðar. Kannski vildi hann ögra leikmönnum með þessu útspili, fremur en að ganga svo langt að reka Guðmund.“Eitt stórmót eftir Eftir stendur að Guðmundur verður áfram þjálfari danska liðsins fram á mitt sumar og hann stýrir liðinu á heimsmeistaramótinu í Frakklandi í janúar. Kraul telur að þrátt fyrir allt geti það gengið vel. „Staðan sem var komin upp var afar erfið fyrir Guðmund en hann tókst afar vel á við hana, sem og eftirmálin. Danskir íþróttamenn eru aldir upp við það að hafa skoðun á öllum málum og það getur verið erfitt að þjálfa svoleiðis menn. En það eru öflugir leikmenn í þessu liði og menn geta vel komið sér saman um að starfa saman fram yfir HM í Frakklandi,“ segir Kraul. Það sér því fyrir endann á þessu furðulega máli en lítið hefur heyrst hvað leikmennirnir sjálfir segja um það. „Þeir fengu að vita af þessu með SMS-skilaboðum átta mínútum áður en tilkynningin var send út. Það hefur því lítið heyrst í þeim.“
Handbolti HM 2017 í Frakklandi Ólympíuleikar 2016 í Ríó Tengdar fréttir Umfjöllun og myndir: Danmörk-Frakkland 28-26 | Guðmundur gerði Dani að Ólympíumeisturum Guðmundur Guðmundsson gerði Dani í kvöld að Ólympíumeisturum í handbolta en Danir unnu þá Ólympíumeistara síðustu tveggja leika, Frakka, með tveggja marka mun. 21. ágúst 2016 18:30 Guðmundur: Getur vel farið svo að ég hætti í handbolta "Þetta var mjög erfið ákvörðun og ég var búinn að velta þessu lengi fyrir mér,“ segir Guðmundur Þórður Guðmundsson í samtali við Vísi en það var tilkynnt í morgun að hann muni hætta með danska landsliðið á næsta ári. 8. nóvember 2016 14:00 Svona var stemmningin þegar Danir urðu Ólympíumeistarar | Myndir Guðmundur Guðmundsson leggst á koddann í kvöld sem nýkrýndur Ólympíumeistari. 21. ágúst 2016 23:15 Guðmundur hafði ekkert að gera með afsögn Wilbek Framkvæmdastjóri danska handknattleikssambandsins segir að Wilbek hafi sjálfur ákveðið að stíga til hliðar. 30. ágúst 2016 11:00 Guðmundur hættir að þjálfa danska landsliðið Ólympíumeistarinn endurnýjar ekki samninginn við danska handknattleikssambandið. 8. nóvember 2016 10:20 Ólympíumeistarinn Guðmundur: Mikilvægt að láta ekki toga sig út og suður Ólympíumeistarinn Guðmundur Guðmundsson ræddi við Hjört Hjartarson í útvarpsþættinum Akraborginni í gær. 26. ágúst 2016 11:30 Þetta sagði Guðmundur við dönsku strákana fyrir sigurinn á Frökkum Guðmundur Guðmundsson gerði Dani að Ólympíumeisturum í kvöld eftir sigur á Frökkum í úrslitaleik á Ólympíuleikunum í Ríó. 21. ágúst 2016 20:19 Mest lesið Óvænt úrslit á HM í pílu í kvöld Sport Missti niður um sig brækurnar og gaf ódýrt mark Fótbolti Charlie Woods fór holu í höggi í fyrsta sinn Golf Salah sló þrjú met í dag Fótbolti Wagner með slitið krossband og úr leik út tímabilið Körfubolti „Við vorum taugaóstyrkir“ Fótbolti Martröð hjá Manchester United í leikhúsi draumanna Enski boltinn Cullen stormaði út af blaðamannafundi Sport Útsalah á mörkum í Lundúnum Enski boltinn Dagskráin í dag: Það er pílan Sport Fleiri fréttir Viktor Gísli góður þegar Wisla Plock fór á toppinn Negla Elínar Klöru eitt af flottustu mörkum EM Kolstad vann toppslaginn Dana áberandi í síðasta leik ársins Leik Gísla og félaga í Magdeburg frestað vegna árásarinnar Rosalegur hæðarmunur á liðsfélögum íslensku strákanna Lærisveinar Guðmundar fara í frí með góðan sigur að baki Arnór frá Gumma til Arnórs Ósáttir Harðarmenn stofnuðu kröfu í heimabanka dómara Staðfesta 10-0 sigur ÍBV gegn Haukum Íslendingaliðið heldur áfram í undanúrslit Lærisveinar Guðjóns Vals úr leik í bikarkeppninni „Jólin eru ekki alveg eins afslöppuð“ Þyrfti kraftaverk til að Ómar yrði með á HM Þetta eru strákarnir sem spila fyrir Ísland á HM Snorri kynnti HM-hóp Íslands Lofaði konunni að flytja ekki til Íslands Framarar slógu út bikarmeistarana Afturelding í bikarúrslitin Dana Björg næstmarkahæst í sigri í toppslag Þórir gæti orðið þjálfari ársins í tveimur löndum „Ég er bara búinn að vera að jafna mig“ Stelpurnar hans Þóris tryggðu sér tvær milljónir hver Kvaddi á sama tíma og Þórir en sagði liðsfélögunum ekki frá því Guðmundur Bragi og félagar verða með á bikarúrslitahelginni Stjörnumenn fyrstir í bikarúrslitin Lærisveinar Gumma Gumm úr leik í bikarnum Bræðurnir góðir en Kolstad saknaði Sigvalda í tapi í Íslendingaslag Haukur og félagar unnu baráttuna um Búkarest Úrslitin í leik HK og Stjörnunnar standa Sjá meira
Umfjöllun og myndir: Danmörk-Frakkland 28-26 | Guðmundur gerði Dani að Ólympíumeisturum Guðmundur Guðmundsson gerði Dani í kvöld að Ólympíumeisturum í handbolta en Danir unnu þá Ólympíumeistara síðustu tveggja leika, Frakka, með tveggja marka mun. 21. ágúst 2016 18:30
Guðmundur: Getur vel farið svo að ég hætti í handbolta "Þetta var mjög erfið ákvörðun og ég var búinn að velta þessu lengi fyrir mér,“ segir Guðmundur Þórður Guðmundsson í samtali við Vísi en það var tilkynnt í morgun að hann muni hætta með danska landsliðið á næsta ári. 8. nóvember 2016 14:00
Svona var stemmningin þegar Danir urðu Ólympíumeistarar | Myndir Guðmundur Guðmundsson leggst á koddann í kvöld sem nýkrýndur Ólympíumeistari. 21. ágúst 2016 23:15
Guðmundur hafði ekkert að gera með afsögn Wilbek Framkvæmdastjóri danska handknattleikssambandsins segir að Wilbek hafi sjálfur ákveðið að stíga til hliðar. 30. ágúst 2016 11:00
Guðmundur hættir að þjálfa danska landsliðið Ólympíumeistarinn endurnýjar ekki samninginn við danska handknattleikssambandið. 8. nóvember 2016 10:20
Ólympíumeistarinn Guðmundur: Mikilvægt að láta ekki toga sig út og suður Ólympíumeistarinn Guðmundur Guðmundsson ræddi við Hjört Hjartarson í útvarpsþættinum Akraborginni í gær. 26. ágúst 2016 11:30
Þetta sagði Guðmundur við dönsku strákana fyrir sigurinn á Frökkum Guðmundur Guðmundsson gerði Dani að Ólympíumeisturum í kvöld eftir sigur á Frökkum í úrslitaleik á Ólympíuleikunum í Ríó. 21. ágúst 2016 20:19