Menning

Sálumessa sungin í minningu Jóns Stefánssonar organista

Gunnþóra Gunnarsdóttir skrifar
"Jón fékk mig oft til að syngja og vinátta okkar entist þar til hann fór,“ segir Garðar Cortes söngvari og stjórnandi Óperukórsins.
"Jón fékk mig oft til að syngja og vinátta okkar entist þar til hann fór,“ segir Garðar Cortes söngvari og stjórnandi Óperukórsins. Vísir/Pjetur
Óperukórinn í Reykjavík syngur Sálumessu Verdis – Verdi Requiem í Langholtskirkju á morgun, föstudaginn 11. nóvember klukkan 20, ásamt einsöngvurunum Þóru Einarsdóttur, Sesselju Kristjánsdóttur, Gissuri Páli Gissurarsyni og Viðari Gunnarssyni. 

Félagar úr Sinfóníuhljómsveit Íslands leika og stjórnandi er Garðar Cortes. Viðburðurinn er í minningu Jóns Stefánssonar organista en á morgun er ár liðið frá síðasta heila deginum í lífi hans, því 12. nóvember í fyrra lenti hann í bílslysi og náði aldrei meðvitund aftur.

„Við Jón vorum samferðamenn og þegar Jón var með allar sínar Bach-kantötur og Händel-stykki, fékk hann mig til að syngja fyrir sig. Þannig hófst okkar samstarf og vináttan entist þangað til hann fór.

Við sem stöndum að þessum flutningi nú, um 130 manns, áttum sálumessuna í handraðanum, við fluttum hana árið 2013 í tilefni af 200 ára afmæli Verdis. Vorum beðin um að fara með hana til Rússlands en það slóst af og okkur fannst við hæfi að minnast Jóns með því að flytja hana núna.

Þá tökum við líka þátt í því að afla fjár í minningarsjóðinn sem stofnaður hefur verið um hann og er í vörslu Listafélags Langholtskirkju, ágóði af tónleikunum mun renna í þann sjóð.“

 

Greinin birtist fyrst í Fréttablaðinu 10. nóvember 2016.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.