Fótbolti

Lewandowski í stuði í Eindhoven | Öll úrslit kvöldsins

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Lewandowski skaut Bæjara áfram í 16-liða úrslitin.
Lewandowski skaut Bæjara áfram í 16-liða úrslitin. Vísir/Getty
Átta leikir fóru fram í riðlakeppni Meistaradeildar Evrópu í kvöld.

Arsenal og Paris Saint-Germain eru komin áfram í 16-liða úrslit eftir úrslit kvöldsins í A-riðli.

Arsenal vann 2-3 endurkomusigur á Ludogorets og draumamark Thomas Meunier tryggði PSG 1-2 sigur á Birki Bjarnasyni og félögum í Basel.

Í B-riðli berjast um Napoli, Benfica og Besiktas um að komast áfram í 16-liða úrslitin.

Marek Hamsik tryggði Napoli stig gegn Besiktas í Istanbúl og mark Eduardo Salvio úr vítaspyrnu tryggði Benfica sigur á Dynamo Kiev. Napoli er með sjö stig á toppi riðilsins, jafnmörg og Benfica en betri markatölu. Besiktas er í 3. sætinu með sex stig og Dynamo Kiev rekur lestina með aðeins eitt stig.

Manchester City hefndi ófaranna gegn Barcelona í síðustu umferð og vann frábæran 3-1 sigur í leik liðanna á Etihad í C-riðli. Í hinum leik riðilsins skildu Borussia Mönchengladbach og Celtic jöfn, 1-1.

Börsungar sitja á toppi riðilsins með níu stig, tveimur stigum á undan Man City. Gladbach er með fjögur stig í 3. sætinu og Celtic vermir botnsæti riðilsins með tvö stig.

Tvö mörk frá Robert Lewandowski tryggðu Bayern München 1-2 sigur á PSV Eindhoven á útivelli í D-riðli.

Pólski framherjinn var í miklum ham í leiknum en auk þess að skora mörkin tvö skaut hann þrívegis í marksúlur PSV. Mörkin úr leiknum má sjá hér að neðan.

Með sigrinum eru þýsku meistararnir öruggir með sæti í 16-liða úrslitum, líkt og Atlético Madrid sem er með fullt hús stiga eftir 2-1 sigur á Rostov á heimavelli. Antoine Griezmann skoraði bæði mörk Atlético Madrid, það síðara á fjórðu mínútu í uppbótartíma.

Úrslit kvöldsins:

A-riðill:

Ludogorets 2-3 Arsenal

1-0 Jonathan Cafu (12.), 2-0 Claudiu Keserü (15.), 2-1 Granit Xhaka (20.), 2-2 Oliver Giroud (41.), 2-3 Mesut Özil (87.).

Basel 1-2 PSG

0-1 Blaise Matuidi (43.), 1-1 Luca Zuffi (76.), 1-2 Thomas Meunier (90.).

Rautt spjald: Serey Die, Basel (84.).

B-riðill:

Besiktas 1-1 Napoli

1-0 Ricardo Quaresma, víti (79.), 1-1 Marek Hamsik (82.).

Benfica 1-0 Dynamo Kiev

1-0 Eduardo Salvio, víti (45+2.).

C-riðill:

Man City 3-1 Barcelona

0-1 Lionel Messi (21.), 1-1 Ilkay Gündogan (39.), 2-1 Kevin De Bruyne (51.), 3-1 Gündogan (74.).

Gladbach 1-1 Celtic

1-0 Lars Stindl (32.), 1-1 Moussa Dembele, víti (76.).

Rautt spjald: Julian Korb, Gladbach (75.).

D-riðill:

PSV 1-2 Bayern München

1-0 Santiago Arias (14.), 1-1 Robert Lewandowski, víti (34.), 1-2 Lewandowski (74.).

Atlético Madrid 2-1 Rostov

1-0 Antoine Griezmann (28.), 1-1 Sardar Azmoun (30.), 2-1 Griezmann (90+4.).


Tengdar fréttir

Draumamark bakvarðarins felldi Birki og félaga

Paris Saint-Germain er komið áfram í 16-liða úrslit Meistaradeildar Evrópu eftir dramatískan 1-2 útisigur á Basel í kvöld. Birkir Bjarnason lék allan leikinn fyrir Basel.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×