Fótbolti

Sevilla-menn í stuði | Öll úrslit kvöldsins

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Leikmenn Sevilla voru í miklum ham í kvöld.
Leikmenn Sevilla voru í miklum ham í kvöld. vísir/getty
Átta leikir fóru fram í riðlakeppni Meistaradeildar Evrópu í kvöld.

Bayer Leverkusen gerði góða ferð til London og vann 0-1 sigur á Tottenham á Wembley í E-riðli.

Tottenham er í 3. sæti riðilsins með fjögur stig, tveimur stigum á eftir Leverkusen og fjórum stigum á eftir Monaco sem vann öruggan 3-0 sigur á CSKA Moskvu á heimavelli. Radamel Falcao skoraði tvívegis fyrir Monaco.

Borussia Dortmund er komið áfram í 16-liða úrslit eftir sigur á Sporting Lissabon. Adrián Ramos skoraði eina mark leiksins á 12. mínútu.

Dortmund er með 10 stig á toppi F-riðils, tveimur stigum á undan Real Madrid sem gerði 3-3 jafntefli við Legia í Varsjá.

FC Köbenhavn og Leicester City gerðu markalaust jafntefli í Kaupmannahöfn í G-riðli. Leicester er með 10 stig á toppi riðilsins og hefur ekki enn fengið á sig mark.

Í hinum leik riðilsins vann Porto 1-0 sigur á Club Brugge. André Silva gerði eina markið skömmu fyrir hálfleik.

Sevilla situr á toppi H-riðils með 10 stig eftir 4-0 sigur á Dinamo Zagreb.

Á sama tíma gerðu Juventus og Lyon 1-1 jafntefli í Tórínó. Gonzalo Higuaín kom ítölsku meisturunum yfir með marki úr vítaspyrnu á 13. mínútu en Corentin Tolisso jafnaði metin sex mínútum fyrir leikslok.

Juventus er með átta stig í 2. sæti riðilsins, fjórum stigum á undan Lyon sem er í 3. sætinu. Dinamo Zagreb situr á botninum án stiga.

Úrslitin í kvöld:

E-riðill:

Tottenham 0-1 Leverkusen

0-1 Kevin Kampl (65.).

Monaco 3-0 CSKA Moskva

1-0 Valére Germain (13.), 2-0 Radamel Falcao (29.), 3-0 Falcao (41.).

F-riðill:

Legia Varsjá 3-3 Real Madrid

0-1 Gareth Bale (1.), 0-2 Karim Benzema (35.), 1-2 Vadis Odjidja Ofoe (40.), 2-2 Miroslav Radovic (58.), 3-2 Thibault Moulin (83.), 3-3 Mateo Kovacic (85.).

Dortmund 1-0 Sporting

1-0 Adrián Ramos (12.).

G-riðill:

FCK 0-0 Leicester

Porto 1-0 Club Brugge

1-0 André Silva (37.).

H-riðill:

Juventus 1-1 Lyon

1-0 Gonzalo Higuaín, víti (13.), 1-1 Corentin Tolisso (84.).

Sevilla 4-0 Dinamo Zagreb

1-0 Luciano Vietto (31.), 2-0 Sergio Escudero (66.), 3-0 Steven N'Zonzi (80.), 4-0 Wissam ben Yedder (87.).

Rautt spjald: Petar Stojanovic, Dinamo (45+1.).




Fleiri fréttir

Sjá meira


×