Skoðun

Góður kennari skiptir öllu máli

Valdimar Víðisson skrifar

Á þessu ári hafa grunnskólakennarar fellt kjarasamning í tvígang. Fyrst í júní og svo aftur núna í haust. Stjórn FG (félags grunnskólakennara) ákvað því að heimsækja skóla til að heyra beint í kennurum. Gott framtak sem mun ábyggilega skila miklu í þá vinnu sem er framundan. Grunnskólakennarar voru því tiltölulega rólegir þar sem þessi vinna er í gangi. En hvað gerist svo? Jú, kjararáð ákveður að hækka laun æðstu embætismanna um mörg hundruð þúsund, ekki á ári, nei, á mánuði.



Launahækkanirnar eru hærri heldur en meðalkennari er að fá útborgað um hver mánaðarmót. Þessi ákvörðun var því ákveðið kjaftshögg fyrir kennarastéttina sem er samningslaus og þarf að berjast fyrir hverju einasta prósenti í launahækkunum. Þar fyrir utan þurfa kennarar að skilgreina vinnutímann sinn og verkefni. Það þurfa þeir ekki að gera sem heyra undir kjararáð. Hver er sanngirnin í því? Eru þeir sem heyra undir kjararáð merkilegra og betra fólk en við hin?



Grunnskólakennarar eru svo langt í frá öfundsverðir af sínum launum. Einhleypur kennari með börn á sínu framfæri þarf að vera í aukavinnu til að láta enda ná saman. Hver er sanngirnin í því?



Starf grunnskólakennara er mjög gefandi og skemmtilegt starf. En það er mikið álagsstarf og áreitið er gífurlega mikið. Laun þeirra þurfa því að vera góð. Þetta er ekki spurning um að semja um vinnutíma, verkefni eða viðveru, þetta er spurning um að hækka launin og það umtalsvert. Viðsemjendur kennara benda á að það hafa orðið hækkanir undanfarin ár, það er vissulega rétt. En það gleymist að kennarar voru þá að selja eitthvað annað eins og t.d. afsláttartíma í kennslu.



Umræðan í samfélaginu er ekki alltaf með kennurum. Starfið er talað niður og því miður eru það í sumum tilfellum kennarar sjálfir sem gera það. Því þarf að breyta. Grunnskólakennarar hafa fáa bandamenn þar sem umræðan er oft á þá leið að kennarar séu svo oft í fríi, fái mikið svigrúm og fleira í þeim dúr. Kennari í fullu starfi skilar af sér tæplega 43 klst. á viku í vinnu. Umframtíminn sem hann vinnur er þá til að vinna af sér jóla- og páskafrí.



Veikindafjarvistir kennara hafa aukist undanfarin ár. Ég tel að það sé að einhverju leyti vegna mikils álags. Kennarar eru oft búnir á því. Búnir á því vegna álags, áreitis og einnig einfaldlega langþreyttir á sinni stöðu.



Ég skora því á sveitarfélögin að skoða þetta frá grunni. Við þurfum sátta kennara. Kennara sem eru stoltir af sínu starfi og sáttir með sín laun. Það eru mun færri sem hefja kennaranám í dag heldur en fyrir nokkrum árum og því lítur út fyrir að það verði kennaraskortur í framtíðinni. Af hverju sækja svona fáir í námið? Jú, það borgar sig bara ekki að leggja á sig þetta háskólanám fyrir þessi laun. Það er bara þannig.




Skoðun

Skoðun

BRCA

Elín Íris Fanndal Jónasdóttir skrifar

Sjá meira


×