Vatíkanið fordæmir hómófóbísk ummæli kaþólskrar útvarpsstöðvar Hulda Hólmkelsdóttir skrifar 4. nóvember 2016 22:16 Frans páfi Vísir/Getty
Vatíkanið hefur fordæmt ummæli kaþólskar útvarpsstöðvar um að nýlegir jarðskjálftar í Ítalíu væru „refsing guðs“ vegna giftinga samkynhneigðra. Ummælin voru send út á útvarpsstöðinni Radio Maria og hefur Vatíkanið sagt þau „móðgandi og hneykslanleg.“ Dóminíski munkurinn John Cavalcoli sagði að jarðskjálftar, líkt og þeir í ágúst sem urðu nær 300 manns að bana, væru afleiðing synda mannanna. Hann sagði að þar á meðal væru lög sem heimila samkynhneigðum hjónum að staðfesta sambúð sína, sem samþykkt voru á Ítalíu í maí síðastliðnum. Vatíkanið segir ummælin heiðin og að þau hafi ekkert með kaþólska trú að gera. „Þessi ummæli eru móðgandi fyrir trúaða og hneykslanleg fyrir þá sem ekki trúa,“ sagði Monsignor Angelo Becciu, sem fer með utanríkismál Vatíkansins og er einn nánasti samstarfsmaður Frans páfa. Becciu sagði að Radio Maria, sem áður hefur verið gagnrýnt fyrir gyðingahatur, þurfi að tempra orðalag sitt og samræmast gildum kirkjunnar um miskunnsemi. Radio Maria hefur birt yfirlýsingu á vefsíðu sinni, þar sem segir að ummælin endurspegli ekki afstöðu stöðvarinnar.
Páfagarður Mest lesið Egill syrgir brottvísun vina sinna Innlent Ölvaður ökumaður keyrði á umferðareyju og reyndi að flýja Innlent „Hreint og klárt vistmorð sem hér á sér stað“ Innlent Segir Akranes verða svefnbæ Innlent Útilokar ekki kosningu en Jón vill kjósa áður en það verður of seint Innlent Reikna með að hefja formlegar sameiningarviðræður í haust Innlent N1-mót og Dyrfjallahlaup í skítaveðri Innlent Allt að tuttugu stiga hiti í dag Veður Þyrla kölluð út vegna bifhjólaslyss á Vestfjörðum Innlent Lögregla vopnaðist og skotvopn haldlagt Innlent Fleiri fréttir Viðsnúningur í frönsku þingkosningunum Frakkar ganga til sögulegra kosninga Sextán drepnir í loftárás á skóla Skortur á Ozempic hefur leitt til ólöglegrar starfsemi Nefna Mílanóflugvöll í höfuðið á Berlusconi Beryl lék Mexíkó grátt Umbótasinni bar sigur úr býtum í Íran Heitir því að klára baráttuna og sigra Trump Reeves skipuð fjármálaráðherra fyrst breskra kvenna Sunak segir af sér og hættir sem leiðtogi Tímamót í samningaviðræðum en enn langt í land Stórsigur Verkamannaflokksins á kostnað Íhaldsflokksins Kæmi mjög á óvart sigri annar flokkur en Verkamannaflokkurinn Verkamannaflokkurinn með stórsigur samkvæmt útgönguspám Baktalaði Biden í golfi: „Gamla niðurbrotna skítahrúga“ Kristrún og félagar sækja atkvæði fyrir Verkamannaflokkinn Enn má pissa í sjóinn á Costa del Sol Uppsagnir á Skaganum og Bretar kjósa nýja valdhafa Hryðjuverkamaðurinn í Ósló fær þyngsta dóm sögunnar Bretar ganga að kjörborðinu Neil Gaiman sakaður um kynferðisofbeldi Trump eykur forskotið og Biden ekki á förum Þvertaka fyrir að Biden sé efins um framboð Ákærður fyrir árásina á Mette Frederiksen Ákærðir fyrir að hafa fellt tré með banvænum afleiðingum Maður á þrítugsaldri stunginn til bana í Kaupmannahöfn Gert að eyða gjafasæði vegna mistaka við merkingu Beryl við það að skella á Jamaíku Sá fyrsti sem kallar eftir því að Biden stígi til hliðar Friðhelgin stórauki vald forsetans Sjá meira