Skoðun

Vöknum og vekjum aðra til vitundar um einelti

Helga Björk Magnúsd. Grétudóttir og Ögmundur Jónasson skrifar
Dagurinn í dag – hinn 8. nóvember – er alþjóðlegur baráttudagur gegn einelti. Undanfarin ár höfum við undirrituð sameiginlega sent frá okkur hvatningu af þessu tilefni. Tildrög þessa er samstarf sem við áttum á árinu 2009 þegar annað okkar var heilbrigðisráðherra en hitt aktívisti sem beitti sér fyrir aðgerðum gegn einelti, þar á meðal að komið yrði á markvissu samstarfi milli ráðuneyta um að takast á við eineltisvandann í skólum, á vinnustöðum og í þjóðfélaginu. Samráðshópur varð til og síðar var fagráð sett á laggirnar, sem án efa hefur haft þýðingu málefninu til framdráttar.

Orð og efndir

Á undanförnum árum hefur þagnarmúrinn sem umlukið hefur eineltið verið brotinn niður. Margir hafa tekið þátt í því múrbroti. Þar ber öllum öðrum fremur að að nefna framlag allra þeirra einstaklinga sem stigið hafa fram og sagt frá reynslu sinni. Slíkt er hægara sagt en gert og krefst mikils hugrekkis. Þrátt fyrir allt þetta þrífst eineltið og verður oftar en ekki úrræðaleysi og í sumum tilvikum viljaleysi að bráð. Staðreyndin er sú að ráðuneyti, stofnanir, skólar og fyrirtæki ráða illa við einelti og kynferðisáreiti. Stundum er neitað að ræða vandann, meðal annars á þeim forsendum að það sé ekki í verkahring viðkomandi að ræða eða takast á við „einstök mál". Síðan er það sorgleg staðreynd að sumar stofnanir og fyrirtæki sem segjast vilja uppræta einelti og hafa í hávegum tal um „mannauð“ og virðingu fyrir honum, sýna síðan hið gagnstæða þegar á hólminn kemur, stundum með andvaraleysi og jafnvel í sumum tilvikum með framkomu í garð einstaklinga sem varla verður flokkuð öðru vísi en sem einelti.

Hringjum bjöllum og þeytum horn!

Eineltisdagurinn er hugsaður til að halda okkur við efnið. Þess vegna eru allir sem vilja ljá þessari mannréttindabaráttu stuðning hvattir til að hringja bjöllum eða þeyta flautur og horn á slaginu klukkan 13:00 og á næstu sjö mínútum, eina mínútu fyrir hvern dag vikunnar. Með þessu móti sýnum við táknrænan stuðning við fórnarlömb eineltis og heitstrengingu um að rjúfa þögnina sem hefur lengi umleikið einelti. Með þessu móti minnumst við einnig þeirra fjölmörgu sem svipt hafa sig lífi vegna eineltis. Mikilvægt er að enginn standi þögull hjá. Reynum þvert á móti að hafa góð áhrif á umhverfi okkar nær og fjær, ekki síst það sem stendur okkur næst. Mikilvægt er að bera virðingu fyrir fjölbreytileikanum og beita ekki valdi í samskiptum. Það á við um einelti eins og mörg þjóðfélagsmein að það krefst stöðugrar árvekni að ná árangri í glímunni við þau. Hringjum bjöllum og þeytum horn klukkan eitt í dag. Vekjum samfélagið, vöknum sjálf.








Skoðun

Skoðun

BRCA

Elín Íris Fanndal Jónasdóttir skrifar

Sjá meira


×