France Football tilnefnir bestu fótboltamenn heims í allan dag Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 24. október 2016 07:00 Lionel Messi með fimmta Gullboltann sinn. Vísir/Getty
France Football ætlar að velja besta knattspyrnumann ársins og afhenda honum Gullboltann þrátt fyrir að samstarfinu við FIFA sé nú lokið. France Football hefur staðið fyrir verðlaununum frá 1956 en undanfarin sex ár hafði blaðið verið í samstarfi með Alþjóðaknattspyrnusambandinu. FIFA tilkynnti í síðasta mánuði að samstarfinu væri lokið. Frakkarnir gáfu það út um leið að þeir ætluðu að halda ótrauðir áfram og ætluðu jafnvel að bjóða upp á einhverjaer nýjungar. Sú fyrsta af þeim er að gefa ekki út allar tilnefningarnar í einu. Lionel Messi er handhafi Gullbolta Evrópu en hann vann hann í fimmta sinn í fyrra. Annaðhvort Lionel Messi eða Cristiano Ronaldo hafa unnið þessi verðlaun frá og með árinu 2008. France Football tilnefnir alls 30 leikmenn sem koma til greina í valinu og ætlar að greina frá tilnefningum sínum í allan dag. Fimm leikmenn eru kynntir inn í einu og mun France Football halda síðan áfram að bæta í hópinn fram eftir degi. Fyrstu tilnefningarnar voru tilkynntar snemma í morgun. Liðsfélagarnir og stórstjörnurnar hjá Evrópumeisturum Real Madrid, Gareth Bale og Cristiano Ronaldo, voru báðir í fyrsta hópnum.Þessir koma til greina sem Knattspyrnumaður ársins 2016: Sergio Aguero (Manchester City) Pierre-Emerick Aubameyang (Borussia Dortmund) Gareth Bale (Real Madrid) Gianluigi Buffon (Juventus) Cristiano Ronaldo (Real Madrid)25 fleiri bætast í hópinn í dag
Fótbolti Íslenski boltinn Mest lesið Tárvot Ásta sátt í hjarta sínu með ákvörðunina Íslenski boltinn UEFA hefur rannsókn vegna kvartana Tel Aviv Fótbolti Njarðvík semur við eina unga og efnilega Körfubolti Hætti á samfélagsmiðlum og hættir ekki að skora Enski boltinn Varði mark botnliðsins en bar samt af Íslenski boltinn Daníel Ingi framlengir hjá Nordsjælland Fótbolti Gylfi Þór ekki í hóp Vals í gær en á landsliðsæfingu í dag Íslenski boltinn Ómar Ingi frábær í öruggum sigri Magdeburg Handbolti Þekkti þjálfarann og fékk því himnasendingu frá Reyðarfirði Íslenski boltinn Dásamar Albert og segir hann ráða hver taki vítin Fótbolti Fleiri fréttir UEFA hefur rannsókn vegna kvartana Tel Aviv Varði mark botnliðsins en bar samt af Daníel Ingi framlengir hjá Nordsjælland Hætti á samfélagsmiðlum og hættir ekki að skora Gylfi Þór ekki í hóp Vals í gær en á landsliðsæfingu í dag Tárvot Ásta sátt í hjarta sínu með ákvörðunina Karólína Lea og stöllur enn taplausar Katrín ekki með slitið krossband „Átti þetta tækifæri skilið“ Þekkti þjálfarann og fékk því himnasendingu frá Reyðarfirði Johan Neeskens fallinn frá Onana haldið oftast hreinu Cecilía fer á kostum í Mílanó Martröð Pogba lokið en hvað tekur við? Bergrós besti dómari Bestu deildar kvenna Ofurvaramaðurinn Duran fær nýjan sex ára samning Sævar Atli ekkert rætt við Lyngby Næstu vikur gríðarlega mikilvægar fyrir Ten Hag Mörkin úr Bestu: Sjáðu sturlað mark Emils frá miðju og Davíð bjarga stigi Dásamar Albert og segir hann ráða hver taki vítin Gaf klárum boltastrák verðlaunin „Bara lygarar og svindlarar sem segja að hann sé vandamálið“ Sakaður um að öskra „Frjáls Palestína, ég vona að þið deyið“ Man United ekki byrjað verr síðan 1989 „Menn eru að henda sér fyrir bolta og hlaupa úr sér lungun“ „Erum ennþá með þetta í okkar höndum“ „Þegar þeir misstíga sig þá misstígum við okkur líka“ Albert skoraði sigurmarkið eftir að De Gea varði tvær vítaspyrnur Hemp í sögubækurnar og Man City á toppinn Sjáðu atvikið: Reiður Rúnar sá rautt Sjá meira