Rútuslys á Þingvallavegi Kolbeinn Tumi Daðason skrifar 25. október 2016 10:37
Rúta með fjörutíu og tvo farþega innanborðs, flestir ferðamenn frá Kína, fór á hliðina við Skálafellsafleggjara á Þingvallavegi rétt upp úr klukkan tíu í morgun. Vísir hefur flutt fregnir af málinu í morgun en hér að neðan er það sem við vitum um málið. Rúta með 42 innanborðs, flestir kínverskir ferðamenn, valt upp úr klukkan tíu í morgun við Skálafellsafleggjara á hálum Þingvallavegi Viðbragðsáætlun almannavarna var virkjuð eftir tilkynningu klukkan 10:18 og mikill fjöldi sjúkrabíla, lögreglubíla, tækjabíla slökkviliðs og björgunarsveitarfólk sent á vettvang Tveir eru á gjörgæslu en alls sautján farþegar voru fluttir á Landspítalann. Hinir 27 voru fluttir í fjöldahjálparstöð Rauða Krossins í Mosfellsbæ sem var opnuð vegna slyssins Bílstjóri og leiðsögumaður voru íslenskir en rútan var á vegum Skagaverks ehf Rútan var ekki á nagladekkjum en á góðum dekkjum að sögn forsvarsmanns Skagaverks Búið er að rétta af rútuna Uppfært klukkan 10:40 Mikill viðbúnaður er vegna slyssins og hefur sjúkrabílum og sjúkraflutningamönnum frá Reykjavík og Selfossi verið stefnt á vettvang. Þá eru tækjabílar frá slökkviliðinu á höfuðborgarsvæðinu á leiðinni á vettvang auk mannskaps frá björgunarsveitunum. Þyrla Landhelgisgæslunnar hefur verið kölluð út en verið er að kanna veðurskilyrði á vettvangi til að svara þeirri spurningu hvort hún geti athafnað sig. Frá vettvangi á tólfta tímanum.Vísir/Hulda Uppfært klukkan 10:55 Í tilkynningu frá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu kemur fram að Þingvallarvegi hafi verið lokað vegna slyssins og mikill viðbúnaður sé á vettvangi. Fólk sé beðið að vera ekki á svæðinu og sýna björgunaraðilum skilning vegna starfa á vettvangi.Uppfært klukkan 11:20Samkvæmt upplýsingum frá Almannavörnum voru um 20-30 manns í rútunni og nokkrir slasaðir. Klippa þurfti tvo úr rútunni og er búið að ná öðrum út. Um tíu sjúkrabílar hafa verið sendir á vettvang og reiknað með því að nota þurfi þá alla til að sinna fólki. Rútan liggur á hliðinni nærri afleggaranum hjá Skálafelli.Mikill viðbúnaður er hjá lögreglu og sjúkraliði vegna slyssins.Kort/Loftmyndir.isÁfallateymi Rauða krossins er á vettvangi og „minna slasað“ fólk verður flutt í fjöldahjálparstöð Mosfellsbæjardeildar Rauða Krossins.Uppfært klukkan 11:25Að minnsta kosti sex sjúkrabílar eru ýmist komnir á Landspítalann eða á leiðinni til Reykjavíkur með slasaða farþega.Uppfært klukkan 11:50Páll Matthíasson, forstjóri Landspítalans, segir í samtali við Vísi að fimm til sjö séu alvarlega slasaðir. Fleiri eru minna slasaðir.Uppfært klukkan 12:00Samkvæmt upplýsingum frá Landhelgisgæslunni var rútan illa útbúin þegar kemur að dekkjavali. Þingvallavegur er enn lokaður í báðar áttir, stórir dráttarbílar eru mættir á vettvangi, búið er að ferja alla farþega úr rútunni en enn er hált á veginum og veður vont.Uppfært klukkan 12:10 Lögregla sendi frá sér eftirfarandi tilkynningu upp úr klukkan tólf.Rúta með erlenda ferðamenn hafnaði utan vegar við Þingvallaveg, nálægt Skálafellsafleggjaranum, á ellefta tímanum í morgun. Talið er að um 40 farþegar hafi verið um borð í rútunni, auk ökumanns og farþega. Fjölmennt lið björgunaraðila hélt þegar á vettvang, en strax var ljóst að um alvarlegt slys var að ræða. Slasaðir voru fluttir á Landspítalann, en jafnframt var fjöldahjálparstöð Rauða krossins í Mosfellsbæ virkjuð. Aðgerðir á vettvangi standa enn yfir og Þingvallavegur er áfram lokaður.Lögreglan ítrekar að þeir sem kunna að hafa tekið upp farþega á svæðinu láti vita tafarlaust um slíkt í síma 112. Mjög áríðandi eru þessar upplýsingar komi strax fram svo hægt sé að tryggja að allir sem voru um borð í rútunni séu komnir i leitirnar.Leiðsögumaður og ökumaður rútunnar eru íslenskir, en meirihluta farþeganna kínverskir.Uppfært klukkan 12:25Rútan var á vegum hópbílafyrirtækisins Skagaverks. Gunnar Þór Gunnarsson, forsvarsmaður fyrirtækisins, segir að rútan hafi verið á góðum dekkjum, þó ekki nagladekkjum.Uppfært klukkan 12:35Unnið er að því að rétta við rútuna en fjölmiðlar voru beðnir um að mynda ekki á meðan sú framkvæmd stæði yfir.Uppfært klukkan 12:45Samkvæmt upplýsingum frá Landspítalanum voru fimmtán fluttir á Landspítalann vegna meiðsla og eru tveir á gjörgæslu.Uppfært klukkan 13:00 Lögregla sendir frá sér tilkynningu vegna slyssins:Fjörutíu og tveir voru um borð í rútunni sem hafnaði utan vegar við Þingvallaveg á ellefta tímanum í morgun, en tilkynning um slysið barst lögreglu klukkan 10.18. Fimmtán þeirra voru fluttir á Landspítalann, en hinir í fjöldahjálparstöð Rauða krossins í Mosfellsbæ. Lögreglan ítrekar að aðgerðir á vettvangi standa enn yfir og Þingvallavegur er áfram lokaður.Eins og fram hefur komið eru leiðsögumaður og ökumaður rútunnar íslenskir, og flestir farþeganna kínverskir. Viðkomandi sendráð hafa verið upplýst um slysið.Uppfært klukkan 13:10Búið er að gera grein fyrir öllum farþegum rútunnar, ferðamönnunum fjörutíu sem voru langflestir Kínverjar og leiðsögumanninum og rútubílstjóranum sem eru íslenskir. Fimmtán voru fluttir á Landspítalann en hinir í fjöldahjálparstöð Rauða Krossins í Mosfellsbæ. Þá er búið að rétta af rútuna.Uppfært klukkan 13:27: Viðbúnaðarstig er ekki lengur í gildi á Landspítalanum vegna slyssins. Uppfært klukkan 13:39: Alls voru 27 farþegar úr rútunni fluttir í fjöldahjálparstöð Rauða krossins í Mosfellsbæ. Í viðtali við fréttastofu segir Guðný Björnsdóttir sviðsstjóri hjá Rauða krossinum að þar af hafi fjórir verið fluttir til frekari aðhlynningar á heilsugæslustöðina í Mosfellsbæ og einn á slysadeild í Reykjavík. Aðspurð hvernig gengið hafi að ræða við farþegana segir Guðný að einn þeirra hafi kunnað smá hrafl í ensku en annars væri það líkamstjáningin sem gildir en flestir farþeganna tala mandarín.Uppfært klukkan 14:58: Alls voru sautján farþegar fluttir á Landspítalann en samkvæmt upplýsingum þaðan voru tveir farþegar fluttir á spítalann af heilsugæslunni í Mosfellsbæ.Uppfært klukkan 15:58: Samkvæmt heimildum fréttastofu var rútan á lítið slitnum sumardekkjum. Hálka var á veginum en í dag hafa þrír hópferðabílar farið út af vegum á Suðurlandi vegna hálku og erfiðra aðstæðna. Þingvallavegi var lokað vegna slyssins en hann hefur nú verið opnaður.Fjölmargir björgunarsveitarmenn aðstoðuðu farþega á vettvangi.Vísir/VilhelmPáll Mattíasson, forstjóri Landspítalans, segir að fimm til sjö séu alvarlega slasaðir. Mikill viðbúnaður er á Landspítalanum vegna slyssins.Vísir/Vilhelmvísir/vilhelmFjöldi lögreglumanna, sjúkraflutningsmanna og björgunarsveitarmanna kom að aðgerðum.Vísir/Vilhelm
Ferðamennska á Íslandi Veður Tengdar fréttir Fjöldi slasaðra: Gera ráð fyrir að nýta 10 bíla til sjúkraflutninga Klippa hefur þurft 2 úr flaki rútunnar. 25. október 2016 11:34 Lögregla biður þá sem tóku upp farþega að láta vita Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu biður alla þá sem tóku upp farþega rútunnar sem fór á hliðina við Skálafellsafleggjara á Þingvallavegi í morgun að láta strax vita. 25. október 2016 11:50 Flestir farþegar rútunnar kínverskir Meirihluti farþeganna sem voru um borð í rútu sem hafnaði utan vegar á Þingvallavegi í morgun er kínverskur en ökumaður rútunnar og leiðsögumaður eru íslenskir. 25. október 2016 12:15 Fimm til sjö manns alvarlega slasaðir eftir rútuslysið Fimm til sjö manns eru alvarlega slasaðir eftir rútuslys sem varð skömmu eftir klukkan 10 í morgun á Þingvallavegi við Skálafellsafleggjarann. 25. október 2016 12:05 Mest lesið Spennan magnast fyrir fundi sem óvænt á að fresta Innlent Tíu ára drengur sagður látinn eftir bílslys á Ítalíu Erlent Leit við Meradali í snælduvitlausu veðri Innlent Innan marka að kalla fjárfesta „nútíma þrælahaldara“ Innlent Hætta leitinni í Meradölum Innlent Lögregla hafi hálfpartinn „hrökklast frá“ Innlent Skip úr skuggaflotanum hægði grunsamlega mikið á sér Erlent Reyndu að ræna hraðbanka Innlent „Svarta ekkjan“ fannst látin Erlent Barn meðal látinna í rútuslysi Erlent Fleiri fréttir Rann á snjóruðningstæki og bíllinn ókökuhæfur Öryggisógn í Eystrasaltinu og óskiljanlegur „gjörningur“ lögreglu Tveir bílar rákust saman á brúnni við Fossála Veit vel að önnur kjör en laun þurfi að ræða Hætta leitinni í Meradölum Innan marka að kalla fjárfesta „nútíma þrælahaldara“ Súðavíkurhlíð opin á ný Leit við Meradali í snælduvitlausu veðri Búið að opna Holtavörðuheiði á ný Þungar vikur framundan Skilaréttur neytenda ríkari ef varan er keypt á netinu Lögregla hafi hálfpartinn „hrökklast frá“ Hæstiréttur fer beint í búvörulagamálið Spennan magnast fyrir fundi sem óvænt á að fresta Grímuskylda og ósáttir vínsalar Holtavörðuheiði enn lokuð Reyndu að ræna hraðbanka Komu hesti til bjargar úr gjótu Icelandair skoðar næstu skref í þróun flugflotans Áfram töluverð snjóflóðahætta á Vestfjörðum Áfengissala á helgidögum þjóðkirkjunnar stöðvuð af lögreglu Snjóflóðahætta á Vestfjörðum og frumsýning Yermu Holtavörðuheiðinni lokað aftur í kvöld Sex voru fluttir með þyrlunni Gamla ríkið falt og milljónir fylgja Telja skemmdir í Bláfjöllum minniháttar Súðavíkurhlíð opin til 16 Alvarlegt bílslys í Öræfum Rólegt á aðfangadag en mikil aðsókn í viðtalstíma í desember Snjóflóð féllu á Súðavíkurhlíð Sjá meira
Fjöldi slasaðra: Gera ráð fyrir að nýta 10 bíla til sjúkraflutninga Klippa hefur þurft 2 úr flaki rútunnar. 25. október 2016 11:34
Lögregla biður þá sem tóku upp farþega að láta vita Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu biður alla þá sem tóku upp farþega rútunnar sem fór á hliðina við Skálafellsafleggjara á Þingvallavegi í morgun að láta strax vita. 25. október 2016 11:50
Flestir farþegar rútunnar kínverskir Meirihluti farþeganna sem voru um borð í rútu sem hafnaði utan vegar á Þingvallavegi í morgun er kínverskur en ökumaður rútunnar og leiðsögumaður eru íslenskir. 25. október 2016 12:15
Fimm til sjö manns alvarlega slasaðir eftir rútuslysið Fimm til sjö manns eru alvarlega slasaðir eftir rútuslys sem varð skömmu eftir klukkan 10 í morgun á Þingvallavegi við Skálafellsafleggjarann. 25. október 2016 12:05