Skoðun

Styttum vinnuvikuna

Magnús Már Guðmundsson skrifar
Fjölskylduvænt samfélag og langur vinnutími fara ekki saman. Skýrar vísbendingar eru um það að styttri vinnuvika geti leitt til meiri framleiðni og hafi jákvæð áhrif á vellíðan starfsfólks. Þess vegna eigum við að stytta vinnuvikuna.

Vinnutími á Íslandi er lengstur allra landa í Evrópu, ef litið er til vinnustunda þeirra sem vinna fulla vinnu. Tengsl eru á milli styttri vinnutíma og meiri framleiðni. Ef Ísland er borið saman við hin norrænu ríkin sést að á Íslandi er unnið meira en annars staðar á Norðurlöndunum, en landsframleiðsla á Íslandi er talsvert minni en í Svíþjóð, Noregi, Danmörku og Finnlandi.

Langur vinnudagur kemur niður á heilsu okkar. Sýnt hefur verið fram á að þeir sem vinna mjög mikið eru í meiri hættu á að fá kransæðasjúkdóma og heilablóðfall en þeir sem vinna styttri vinnuviku. Hér á landi er hlutfall þeirra sem vinna meira en 50 tíma á viku hvað hæst allra í Evrópu en hlutfallið er mun lægra hjá hinum norrænu þjóðunum. Fullyrða má að styttri vinnudagur leiði af sér að færri brenni út í starfi.

Tilraunaverkefni um styttingu vinnuvikunnar án launaskerðingar hefur staðið yfir á tveimur starfsstöðum í Reykjavík í um eitt og hálft ár. Niðurstöður benda til afar jákvæðra áhrifa verkefnisins. Andleg líðan, líkamleg líðan og starfsánægja mælist marktækt meiri á tilraunavinnustöðunum en samanburðarstaðnum á meðan enginn munur mælist á viðhorfi til þjónustu eða opnunartíma. Skammtímaveikindum fækkar á tilraunavinnustöðunum en ekki á samanburðarstaðnum.

Sífellt fleiri hafa á undanförnum árum talað fyrir styttingu vinnuvikunnar og ekki að ástæðulausu. Meginmarkmið er að stuðla að fjölskylduvænum vinnumarkaði með styttri heildarvinnutíma. Það mikilvægasta fyrir börn eru samvistir við foreldra. Þegar við bætist aukin framleiðni, bætt heilsa og betri lífsgæði er ljóst að ráðast þarf í þær breytingar sem leiða til styttingar vinnuvikunnar.

Aðilar vinnumarkaðsins þurfa eðli málsins samkvæmt að koma að breytingum sem fela í sér skipulag vinnutíma sem í grunninn er snúið og snýr að lögum og gerð kjarasamninga. Ríkið á auk þess að stuðla að umfangsmiklu tilraunaverkefni á sínum starfsstöðum, standa fyrir úttekt á þjóðhagslegri arðsemi þess að stytta vinnuvikuna, búa til hvata fyrir sveitarfélög og fyrirtæki að stytta vinnuvikuna og kalla viðeigandi aðila saman að borðinu.

Styttri vinnuvika er hagur okkar allra. Til mikils er að vinna og koma þannig á fjölskylduvænna samfélagi og tryggja aukinn jöfnuð og lífsgæði.

Greinin birtist fyrst í Fréttablaðinu




Skoðun

Skoðun

BRCA

Elín Íris Fanndal Jónasdóttir skrifar

Sjá meira


×