Erlent

Blaðamenn Washington Post afhjúpa Donald Trump í nýrri bók

Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar
Fasteignamógúllinn Donald Trump flýgur yfir Manhattan-eyju á 9. áratugnum.
Fasteignamógúllinn Donald Trump flýgur yfir Manhattan-eyju á 9. áratugnum. vísir/getty
Hvikul hollusta Donald Trump bæði í viðskiptum og pólitík er afhjúpuð í nýrri bók sem teymi blaðamanna Washington Post hafa skrifað en bókin kom út í dag.

Talið er að hún dragi mjög úr trúverðugleika Trump sem er eins og kunnugt er forsetaframbjóðandi Repúblikanaflokksins í forsetakosningunum í Bandaríkjunum sem fram fara í nóvember.

Alls komu um tuttugu blaðamenn að gerð bókarinnar á þriggja mánaða tímabili fyrr á árinu en þeir tóku fjölda viðtala við Trump sem spanna um tuttugu klukkutíma.

Ítarlega er fjallað um bókina á vef Guardian en þar segir meðal annars að blaðamennirnir hafa spurt hann út í það hversu ört hann skipti um stjórnmálaflokk á árunum 1999 til 2012. Trump sagði að það að flakka á milli flokka hefði einfaldlega hentað honum vel.

„Þetta var bara af praktískum ástæðum því ef þú ætlar að fara í framboð þá verðurðu að eignast vini.“

Þá neitaði hann að svara spurningunni um hvort hann hefði einhvern tímann kosið Hillary Clinton, mótframbjóðanda hans nú, en hann hélt eitt sinn samkomu til að safna peningum í kosningasjóði Clinton auk þess sem hann studdi við fjárhagslega við kosningabaráttu hennar sex sinnum á tíu árum. Trump segir að hann hafi litið á það sem skyldu að láta sér líka við fólk, þar á meðal Clinton-hjónin.

Blaðamennirnir fjalla einnig um hina ýmsu viðskiptagjörninga Trump og ræða meðal annars við fólk sem varð fyrir barðinu á honum í tengslum við byggingu fasteignar á Flórída þar sem Trump bar takmarkaða viðskiptalega ábyrgð og lánaði aðeins nafn sitt fyrir verkefnið.

Í bókinni kemur hins vegar fram að einn aðalverktakinn í verkefninu hafi verið maður sem hafði gerst sekur um fjársvik í New York sem tengdust mafíunni. Aðspurður um tengsl sín við manninn kveðst Trump varla hafa þekkt hann. 

Sjá umfjöllun Guardian um bókina hér.


Tengdar fréttir

Fyrirtæki í eigu Trump skulda yfir 76 milljarða

Meðal fjárfesta í fyrirtækjum Donald Trump eru stofnanir sem hann hefur persónulega talað gegn í kosningabaráttunni. Mikil leynd liggur yfir fjármálum forsetaframbjóðandans.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×