Menning

Klámvædd poppmenning

Guðrún Jóna Stefánsdóttir skrifar
Elísabet Birta Sveinsdóttir sýnir verkið Köld nánd í kvöld.
Elísabet Birta Sveinsdóttir sýnir verkið Köld nánd í kvöld. Vísir/Hanna
Markmiðið er að tæla heiminn með sviðsettri nánd við áhorfandann en stjarnan er í raun söluvara neyslumenningar. Köld nánd fjallar um áhrif klámvæddrar poppmenningar með persónulegri frásögn þar sem listamaðurinn notar gamalt myndefni af sér sem barni og unglingi í bland við nýtt efni,“ segir Elísabet Birta Sveinsdóttir, nemi við myndlistarbraut Listaháskóla Íslands, spurð út í verkið Köld nánd sem hún mun flytja í Mengi í kvöld.

Verkið endurspeglar áhrifavaldinn sjálfan, uppgötvun og þær afleiðingar sem tónlistarheimurinn hefur fyrir fólk og mun Elísabet Birta sýna persónulega nálgun sína að verkinu í frekar óhefðbundnum gjörningi. Hún blandar saman dansi og myndlist, en sjálf útskrifaðist hún frá dansbraut Listaháskóla Íslands árið 2013.

„Ég vinn iðulega við mismundi miðla. En þeir miðlar sem ég hef aðallega verið að fást við eru gjörningar, vídeó, málverk, innsetningar og ljósmyndir. Ég bý að dansbakgrunni mínum en ég kom inn í myndlistina frekar mótuð af danslistinni. En ég hef alltaf haft áhuga á að vinna þverfaglega, þegar ég var í dansnámi sótti ég mikið í samstarf í aðrar greinar og byrjaði snemma að blanda saman dansi og kvikmyndagerð, en bý líka svo vel að eiga pabba sem er kvikmyndagerðarmaður,“ segir Elísabet.

„Í þessu verkefni blanda ég myndlistinni og dansinum saman með því að nálgast dansverk sem myndlist. Þetta er einhvers konar blanda af dansverki, gjörningi og vídeóinnsetningu. Það er ákveðinn hráleiki við verkið sem færir það nær gjörningsforminu,“ segir hún og bætir við að hún hafi fengið sterk viðbrögð, og hvetur alla til að mæta í kvöld.



Fréttin birtist fyrst í Fréttablaðinu 4. ágúst.

 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.