Milos: Vilt ekki vita hvað ég myndi gera við hann ef við værum í Serbíu Ingvi Þór Sæmundsson í Kaplakrika skrifar 9. júlí 2016 18:27 Milos kvaðst sáttur með stigið úr því sem komið var. vísir/anton
Milos Milojevic, þjálfari Víkinga, kunni Vladimir Tufegdzic litlar þakkir fyrir rauða spjaldið sem hann fékk gegn FH í leik liðanna í Kaplakrika í dag. Víkingar spiluðu vel í fyrri hálfleik og komust yfir á 10. mínútu með marki Garys Martin. En sjö mínútum fyrir hálfleik fékk Tufegdzic að líta rauða spjaldið hjá Þóroddi Hjaltalín fyrir að gefa Böðvari Böðvarssyni olnbogaskot. „Ég vil ekki tjá mig um dómgæslu en hann gat gefið honum rautt spjald,“ sagði Milos sem er svekktur út í Tufegdzic. „Þú vilt ekki einu sinni vita hvað ég myndi gera ef við værum í Serbíu. Því miður erum við ekki þar, eða sem betur fer fyrir hann. Þetta er þriðji leikurinn á þessu tímabili sem menn gera svona gloríur. „Það var brotið á honum en hann þarf að vera þroskaðari, orðinn 25 ára gamall, og standa þetta af sér. Þetta svar er fyrir UFC og þar látum við Gunnar Nelson eiga sig.“ FH-ingar skoruðu tvö mörk á átta mínútna kafla undir lok leiksins og virtust vera búnir að tryggja sér sigurinn. En Óttar Magnús Karlsson sá til þess að Víkingar færu heim með eitt stig þegar hann jafnaði metin á 93. mínútu. „Það er erfitt að segja hvort þetta var stig unnið eða tvö töpuð miðað við að þeir voru í yfirtölu í um 60 mínútur. Þrátt fyrir að vera betri aðilinn og fá betri færi er ég sáttur með stigið úr því sem komið var,“ sagði Milos. „Maður er alltaf sáttur að ná í eitt stig á þessum velli gegn þessu liði. Mér fannst við sprækari og þeir voru kannski með hugann aðeins við Evrópukeppnina sem er framundan hjá þeim. „Ég er ánægður með karakter minna leikmanna sem ég var ekki ánægður með eftir síðasta leik,“ sagði Milos að endingu.
Pepsi Max-deild karla Mest lesið „Held að hann sé hundfúll að vera ekki í liðinu“ Handbolti Segja Ronaldo hafa misst af leik til að sleppa við svipuhögg Fótbolti Segir það þjakandi og einmanalegt að vera hjá Man United Enski boltinn Þriðja meðgangan á fimm árum: Skórnir komnir á hilluna fyrir fullt og allt Handbolti „Þér að kenna ef við vinnum ekki deildina“ Enski boltinn Gæti fengið bann sem gildir um allan heim Fótbolti Hafnarfjörður keypti Skessuna fyrir 1.190 milljónir Fótbolti „Eins manns dauði er annars brauð“ Handbolti Ofurtölvan setur Liverpool á toppinn og Arsenal ofar Real Madrid Fótbolti Barn beit dómarann á mjög viðkvæman stað og leik var aflýst Fótbolti Fleiri fréttir Thomsen mættur aftur í íslenska boltann Pedersen með tvö og Valsmenn í undanúrslit Auðun tekur við Þrótti Vogum „Fjölskyldan spurði hvort ég gæti ekki fundið hlýrra land“ Sveinn Margeir mögulega ekkert með Víkingum í sumar Víðir með Vestmannaeyingum í sumar Daði Berg frá Víkingi til Vestra Víkingar skipta um gír Ísfirðingar fá hávaxinn eistneskan framherja Kjartan Kári verður áfram hjá FH eftir að hafa hafnað Val Magnús Orri tekur við formannsstólnum af Páli Atli Sigurjóns framlengir við KR Yngri bróðir Benoný Breka yfirgefur líka KR FH-ingar æfðu á grasi í febrúar Síðhærði Færeyingurinn snýr aftur norður Kemur meiddur til Víkings en þó á miklu betri stað Kveðst viss um eftirsjá Gylfa: „Hefðum unnið mótið í fyrra með hann“ ÍA fær Baldvin frá Fjölni Útlit fyrir að Kjartan fylli skarð Gylfa hjá Val „Held að fólk sé komið með leið á því að lesa um þessi félagsskipti“ Gylfi orðinn Víkingur Valsmenn settu sex gegn Grindavík Breki Baxter kórónaði endurkomu Eyjamanna Blikakonur áfram á fullu skriði í Lengjubikarnum KR-ingar áfram á mikilli sigurgöngu undir stjórn Óskars Hrafns Góður sigur Vestra og Fram tapaði gegn Lengjudeildarliði Samþykktu að taka áminningu af leikmönnum og fjölga útlendingum ÍR heldur áfram að hrella liðin úr Bestu deildinni Arnór Smára hættir sem yfirmaður knattspyrnumála hjá Val Sindri Kristinn á óskalista KA Sjá meira