Stórfyrirtæki íhuga flutninga frá London Sæunn Gísladóttir skrifar 30. júní 2016 07:00 Fjölmenn mótmæli gegn Brexit voru fyrir framan breska þingið á þriðjudaginn. Fréttablaðið/EPA
Fjarskiptafyrirtækið Vodafone íhugar að flytja höfuðstöðvar sínar frá Bretlandi og fjárfestingarbankinn Goldman Sachs íhugar að flytja hluta, eða alla 6.500 starfsmenn sína í London til annars lands innan Evrópusambandsins í kjölfar niðurstöðu Brexit-kosninganna. Áður en gengið var að kjörborði til að kjósa um áframhaldandi viðveru Breta í Evrópusambandinu bentu sérfræðingar á að líklegt væri að alþjóðleg stórfyrirtæki myndu flytja hluta af eða alla starfsemi sína frá London ef útganga yrði kosin, og svo virðist sem sú spá sé að rætast. Óvíst er hvort fyrirtækin muni hafa aðgang að ESB-markaðnum sem í eru 27 önnur lönd, ef af útgöngu Breta verður. Vel kemur til greina að fyrirtækin flytji störfin áður en samningar milli Evrópusambandsins og Bretlands er varða útgöngu liggja fyrir. Í minnisblaði frá bandaríska lánshæfismatsfyrirtækinu Fitch segir að búist megi við því að bankar byrji strax að beita hluta af viðbragðsáætlunum sínum, í stað þess að bíða eftir niðurstöðu viðskiptasamninga. Fjöldi banka og fjármálastofnanna hefur lýst því yfir að þau gætu flust frá London. Forsvarsmenn fjárfestingarbankans JPMorgan segja að þeir gætu þurft að færa fjórðung 16 þúsund starfsmanna sinna í Bretlandi til annarra landa innan Evrópusambandsins. Heimildir herma einnig að Morgan Stanley og HSBC muni flytja allt að þúsund störf frá Bretlandi, þó að forsvarsmenn Morgan Stanley hafi hafnað þeim orðrómi. Á þriðjudaginn lýstu forsvarsmenn Vodafone, annars stærsta fjarskiptafyrirtækis heims, því svo yfir að þeir myndu mögulega flytja höfuðstöðvar sínar frá Bretlandi í ljósi þess að meirihluti 462 milljóna viðskiptavina þeirra og 108 þúsunda starfsmanna væru utan Bretlands. Engin lokaákvörðun hefur þó verið tekin. Vodafone er með 13 þúsund starfsmenn í Newbury og London, samkvæmt The Financial Times. Það gæti orðið verulegur skellur fyrir viðskiptalífið í London, en Vodafone er eitt af mest áberandi fyrirtækjum sem tilheyra FTSE-100 vísitölunni. Aðrar evrópskar borgir gætu grætt verulega á fyrirtækjunum sem yfirgefa London eða færa hluta starfsemi sinnar. CNN Money tók saman þær borgir sem gætu mögulega tekið við þessum störfum, þær eru meðal annars Frankfurt, Lúxemborg, París, og Dyflinni. Eftir stormasamar sveiflur í kjölfar Brexit-kosninganna hefur breski hlutabréfamarkaðurinn tekið við sér og hafa hlutabréf hækkað síðustu tvo daga. Gengi pundsins gagnvart Bandaríkjadal hefur einnig styrkst síðustu tvo daga, eftir sögulega lægð.
Brexit Mest lesið „Frekar kvöldsvæfur heldur en morgunfúll“ Atvinnulíf Landsbankinn rekur lestina og lækkar vexti Viðskipti innlent Bogi og Linda kaupa af Heimum fyrir milljarða Viðskipti innlent Loks opnað fyrir umsóknir um hlutdeildarlán Viðskipti innlent Þótti baðherbergið ógeðslegt og fór frá Íslandi Neytendur Atvinnumissir: „Það var rosa skrýtið að lenda í þessu“ Atvinnulíf Misbauð meðferð á hundunum og mátti hætta á námskeiði Neytendur Samþykktu allt að 45 prósent toll á kínverska rafbíla Viðskipti erlent Bankarnir verði að lækka vexti jafnhratt og þeir hækkuðu Viðskipti innlent „En það hefur líka margt fallegt komið út úr þessu“ Atvinnulíf Fleiri fréttir Samþykktu allt að 45 prósent toll á kínverska rafbíla Samið um lok umfangsmikils verkfalls hafnarverkamanna Kærasta rafmyntamógúls í fangelsi vegna FTX-svikanna Stýrivextir lækkaðir í Bandaríkjunum í fyrsta sinn í fjögur ár Tupperware lýsir yfir gjaldþroti Snúa við dómnum og dæma Bonnesen í fangelsi Gera Apple að greiða tvær billjónir í skatta Skaut samstundis niður tillögur um efnahagslega björgun Evrópu Bein útsending: Apple kynnir nýjustu græjurnar Hætta steðjar að lífsgæðum Evrópubúa Volvo heykist á algjörri rafvæðingu árið 2030 Sjá meira