Hiti gæti skriðið yfir 20 stig á hálendinu norðan Vatnajökuls: „Eins ótrúlega og það hljómar“ Birgir Olgeirsson skrifar 10. júní 2016 10:26 Hiti er sagður einna helst geta náð yfir 20 stig á hálendinu norðan Vatnajökuls í dag. Vísir/vedur.is „
Veðurfræðingar sem og íbúar þessa lands upplifa Groundhog day þessa dagana, veðrið endurtekur sig dag eftir dag,“ segir í hugleiðingum veðurfræðings á vef Veðurstofu Íslands. Þar kemur fram að í stuttu máli sé ekkert nýtt að frétta varðandi veðrið í dag, áfram skýjað sunnan- og vestanlands, von á rigningu öðru hverju og sums staðar mun ekki rigna neitt „Öllu meira spennandi staða fyrir norðan og austan, þar mun sjást til sólar, þótt heldur sé hámarkshiti á niðurleið. Það á reyndar við um land allt og er þess ekki að vænta að hiti skríði yfir 20 stigin í dag,“ segir í hugleiðingum veðurfræðings en þar er hiti sagður einna helst geta náð yfir 20 stig á hálendinu norðan Vatnajökuls. „Eins ótrúlega og það hljómar,“ segir í hugleiðingum veðurfræðings. Talið er að staðan geti breyst á sunnudag en þá gæti sólin jafnvel látið sjá sig sunnan- og vestanlands, en öllu þyngra verður þá yfir öðrum landshlutum.Veðurhorfur á landinu næstu daga:Á sunnudag:Austan og norðaustan 5-10 m/s. Víða bjartviðri sunnan- og vestanlands, en skýjað með köflum norðan- og austan til og þokuloft við ströndina. Hiti 7 til 18 stig, hlýjast í innsveitum vestanlands.Á mánudag, þriðjudag, miðvikudag og fimmtudag:Fremur hæg norðaustlæg eða breytileg átt. Skýjað með köflum og skúrir til landsins, einkum síðdegis. Heldur kólnandi.
Veður Mest lesið „Nú hættir þú Sigurður!“ Innlent Eldur Smári segir að sér sé markvisst haldið í myrkrinu Innlent Beittu neyðarstöðvun til að forðast árekstur við Herjólf Innlent Óreiðan ræður ríkjum í Pentagon Erlent Barnaníðingur situr inni þar til hann verður sendur til Litáen Innlent Segir 60 mínútur hafa misst sjálfstæðið og hættir Erlent Eigandi Paramount með puttana í umfjöllun 60 mínútna Erlent Valdatafl í Vatíkaninu: Hver verður næsti páfi? Erlent Beint flug milli Akureyrar og útlanda aldrei verið meira Innlent Úkraínufundinum í London frestað Erlent Fleiri fréttir Óljóst hvað Gad Saad er sakaður um í mótmælapóstum Línan umdeilda fær grænt ljós fyrir dómi Lætur könnun um væntingar ekki á sig fá Kalt veður bjargaði Andrésar andarleikunum fyrir horn Óeðlileg staða á íslenskum eignamarkaði Barnaníðingur situr inni þar til hann verður sendur til Litáen Meirihluti hefur litlar væntingar til borgarstjórnarmeirihlutans „Nú hættir þú Sigurður!“ Beittu neyðarstöðvun til að forðast árekstur við Herjólf Pakki skemmdist og „óafhending“ varð Eldur Smári segir að sér sé markvisst haldið í myrkrinu Beint flug milli Akureyrar og útlanda aldrei verið meira „Ég er mannleg“ Segir líklega langt í næsta gos við Sundhnúka Óþarfi að nota kauðslega þýdda málshætti í páskaeggin Lofar betra sumri en í fyrra Fagnar umræðu um þátttöku Ísraels og segir útspil ráðherra gagnlegt Oscar þori varla út úr húsi af ótta við að vera sendur úr landi Breytingar á gosvirkni, júró-þrýstingur og umdeildir málshættir Missti vélarafl suður af Snæfellsnesi Reiknar með að sækja útför Frans páfa Páskaeggjaframleiðandi fagnar gagnrýni á málshætti Vildi „tagga“ Frans páfa en niðurstaðan reyndist slysaleg „Hér hefur verið unninn skaði sem þarf að stöðva“ Landris heldur áfram en dregið hefur úr hraðanum „Skrítið og óeðlilegt“ að Ísrael fái að vera með í Eurovision Barn á óskoðuðum bíl á 151 kílómetra hraða Gallar í nýbyggingum: Eigendur nýrra íbúða eigi ríkari rétt Ráðherra ræðir þátttöku Ísraels í Eurovision Vill að allir flokkar hafi hlutverk í borgarstjórn Sjá meira