KA gerði góða ferð í Breiðholtið og kom sér á toppinn | Sjáðu mörkin Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 12. júní 2016 15:58 KA-menn eru komnir á toppinn. vísir/stefán
KA skaust á toppinn í Inkasso-deildinni með 0-2 sigri á Leikni í Breiðholtinu í dag.Stefán Karlsson, ljósmyndari Fréttablaðsins og Vísis, var á Leiknisvelli í dag og tók meðfylgjandi myndir. KA-menn hafa unnið þrjá af síðustu fjórum leikjum sínum og eru komnir með 13 stig, jafn mörg og erkifjendurnir í Þór en markatala þeirra gulu er betri. Húsvíkingurinn ungi Ásgeir Sigurgeirsson kom KA í 0-1 á 6. mínútu eftir slæm mistök Ingvars Ásbjörns Ingvarssonar í vörn Leiknis og þannig var staðan í hálfleik. Ásgeir var aftur á ferðinni á 48. mínútu þegar Halldór Kristinn Halldórsson braut á honum og fékk að líta sitt annað gula spjald og þar með rautt. Einum færri áttu Leiknismenn erfitt uppdráttar og varamaðurinn Halldór Hermann Jónsson gulltryggði sigur gestanna með góðu skoti á 77. mínútu. Fleiri urðu mörkin ekki og KA fagnaði góðum útisigri.Mörkin úr leiknum má sjá hér að neðan. Leiknismenn hafa gefið eftir að undanförnu eftir góða byrjun á tímabilinu en Breiðhyltingar hafa tapað þremur leikjum í röð í deild og bikar.vísir/stefán
Pepsi Max-deild karla Mest lesið Greint frá ósæmilegri hegðun í aðdraganda þings KKÍ Körfubolti Næstu bikarmeistarar stórgræða á árangri Víkings Fótbolti Síðustu miðarnir ruku út og uppselt í Laugardalshöllina á morgun Handbolti „Á meðan að pabbi er formaður mun ég ekki skipta um lið“ Körfubolti Ný átta sekúndna regla innleidd hér á landi Íslenski boltinn Heimir leitar sátta: Vill bjór og spjall með Duff og Bradley Fótbolti Þungarokkarar skemmdu meistarafána Bulls Körfubolti Borga 50 milljónir fyrir 17 ára pjakk sem fær sjö ára samning Enski boltinn Í beinni: Keflavík - Stjarnan | Allra síðasti séns Körfubolti Blóðguð Glódís Perla fagnaði sigri á móti Sveindísi Fótbolti Fleiri fréttir Ný átta sekúndna regla innleidd hér á landi Markvörður FH fer heim til Keflavíkur Lengsta undirbúningstímabilið að klárast Alex Freyr skrópaði á æfingu á Spáni Helena Ósk tryggði Valskonum sæti í undanúrslitunum Þór/KA konur áfram í undanúrslit eftir sigur í Árbænum Tveggja leikja bann fyrir glórulausa tæklingu Fyrirliði Vestra veðjaði á leiki í Bestu deildinni 55 ára Rúnar smurði hann í skeytin með bæði hægri og vinstri Valur fær manninn sem var efstur á óskalistanum Kveður Selfyssinga óvænt: „Það er synd að kveðja á þennan hátt“ Baðst afsökunar á tæklingunni í Garðabænum Skrautlegt mark, glæsimark og allt brjálað í sigri KR „Ljótasta tækling ársins komin í íslenska boltanum“ FH sækir liðsstyrk út fyrir landsteinana Trúir á Óla Kristjáns og Jesú Krist Í skýjunum með að hreppa Þórdísi Hrönn Níu mörk þegar KR vann ÍBV QPR vildi Þorra en Fram sagði nei Fylkismenn komust áfram á kostnað Íslandsmeistara Blika Valskonur með fullt hús og markatöluna 15-1 Thomsen mættur aftur í íslenska boltann Pedersen með tvö og Valsmenn í undanúrslit Auðun tekur við Þrótti Vogum „Fjölskyldan spurði hvort ég gæti ekki fundið hlýrra land“ Sveinn Margeir mögulega ekkert með Víkingum í sumar Víðir með Vestmannaeyingum í sumar Daði Berg frá Víkingi til Vestra Víkingar skipta um gír Ísfirðingar fá hávaxinn eistneskan framherja Sjá meira