Lífið

Svona líta Ron, Hermione og dóttir þeirra út í dag

Birgir Örn Steinarsson skrifar
Þau hafa breyst töluvert með aldrinum þau Ron og Hermione, hér með dóttur þeirra Rose.
Þau hafa breyst töluvert með aldrinum þau Ron og Hermione, hér með dóttur þeirra Rose. Vísir/Pottermoe
Í gær fengu aðdáendur Harry Potter að sjá hvernig Potter fjölskyldan muni líta út í væntanlegu leikriti sem fjallar um ný ævintýri þeirra Harry, Ron og Hermione á miðjum aldri. Leikritið sem ber titilinn Harry Potter and the Cursed Child verður frumsýnt í Palace leikhúsinu í London og er skrifað af sjálfri J. K. Rowling.

Í dag opinberaði vefurinn Pottermore frá því hvaða leikarar fari með hlutverk þeirra Ron, Hermione og dóttur þeirra Rose. Þetta er þá líka í fyrsta skiptið sem aðdáendur bókana og myndana fá að sjá hvernig þessar uppáhalds persónur sínar líta út á fullorðinsárunum.



Vísir/Pottermore
Var sérstaklega ánægð með nýju Hermione

Það er leikarinn Paul Thornley sem fer með hlutverk hins fullorðna Ron Weasly en Noma Dumezweni leikur Hermione Granger. Dóttir þeirra er leikin af leikkonunni Cherrelle Skeete.

Rowling segist hafa orðið sérstaklega ánægð þegar hún frétti að Noma hefði hreppt hlutverk Hermione. Noma vann nýverið Olivier Award verðlaunin fyrir sviðsleik.

Um Ron segir Rowling að þrátt fyrir að vera kominn á fimmtugsaldurinn sé hann enn þá sami gamli rugludallurinn. Eini munurinn sé að nú verkjar honum meira í fæturna.


Tengdar fréttir






Fleiri fréttir

Sjá meira


×