Fótbolti

Alfreð: Ef okkur gengur vel á EM gleymist Noregsleikurinn

Tómas Þór Þórðarson skrifar
Alfreð Finnbogason viðurkennir að íslenska landsliðið í fótbolta hafi spilað illa í vináttulandsleiknum gegn Noregi á miðvikudaginn.

„Við vitum það manna best að við spiluðum illa og erum mjög sjálfsgagnrýnir,“ sagði Alfreð fyrir æfingu landsliðsins á Laugardalsvelli í dag.

„Þetta var lélegt og ekki margt jákvætt nema kannski að við töpuðum bara 3-2 á móti liði Noregs sem stjórnaði leiknum allan fyrri hálfleikinn. Við skoruðum tvö mörk úr föstum leikatriðum og þá held ég að jákvæðu punktarnir séu upptaldir,“ bætti framherjinn við en hann spilaði í klukkutíma á miðvikudaginn.

Gengi Íslands í undanförnum vináttulandsleikjum hefur ekki verið upp á marga fiska. En hvenær má búast við því að íslensku strákarnir fari almennilega í gang?

„Form er ekki einhver takki sem þú kveikir á og verður allt í einu klár. Við ætluðum að fara í þennan Noregsleik af fullum krafti, byrja á fullri ferð og keyra almennilega á þá en sú varð ekki raunin,“ sagði Alfreð.

„Leikmenn eru í mjög mismunandi ástandi, sumir spiluðu leik um helgina á meðan aðrir eru ekki búnir að spila í mánuð. Ég held að allir séu mest að hugsa um sjálfa sig og að vera í sem bestu standi eftir tvær vikur.

„Þetta var svolítið eins og æfingaleikur fyrir keppnistímabil. Þú vilt vinna alla leiki en mikilvægast er að fá mínútur. Og þegar uppi verður staðið, og ef við náum góðum árangri á EM, held ég að enginn eigi eftir að muna eftir þessum Noregsleik.“

Viðtalið í heild sinni má sjá í spilaranum hér að ofan.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×