Sport

Obama tók á móti Broncos | Myndir

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Obama fékk að sjálfsögðu Broncos-treyju.
Obama fékk að sjálfsögðu Broncos-treyju. vísir/getty
Barack Obama Bandaríkjaforseti fór á kostum er hann tók á móti NFL-meisturum Denver Broncos í gær.

Hann reytti af sér brandarana og sló í gegn hjá meisturunum.

Hann skildi bestu brandarana eftir handa leikstjórnandanum Peyton Manning. Kallaði hann gaurinn úr auglýsingunum.

„Þú getur fyllt heimilið þitt með vörum sem Peyton auglýsir. Ef þig vantar eitthvað þá talarðu við Peyton,“ sagði forsetinn meðal annars áður en hann hrósaði Manning í hástert.

Nokkrar myndir frá heimsókn Broncos í Hvíta húsið má sjá hér að neðan.

Obama með eiganda Broncos og leikmönnum.vísir/getty
vísir/getty
Obama heilsar Peyton Manning.vísir/getty
NFL



Fleiri fréttir

Sjá meira


×