Fótbolti

Bale næstbesti Bretinn að mati Daily Mail

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Bale hefur unnið Meistaradeildina í tvígang síðan hann kom til Real Madrid.
Bale hefur unnið Meistaradeildina í tvígang síðan hann kom til Real Madrid. vísir/getty
Gareth Bale varð á laugardaginn aðeins annar Bretinn til að vinna Meistaradeild Evrópu oftar en einu sinni með erlendu félagsliði.

Bale hefur tvisvar orðið Evrópumeistari með Real Madrid á síðustu þremur árum, jafn oft og Steve McManaman varð á sínum tíma með sama liði.

Sjá einnig: Ronaldo tryggði Real sigur í Meistaradeild Evrópu | Sjáðu mörkin og vítaspyrnukeppnina

Aðeins tveir aðrir Bretar hafa unnið Meistaradeildina með erlendu félagi; Paul Lambert með Borussia Dortmund 1997 og Owen Hargreaves með Bayern München fjórum árum síðar.

Í tilefni af þessum áfanga Bales valdi Daily Mail þá bresku leikmenn sem hafa staðið sig best utan heimalandsins, þ.e. í hinum bestu deildum Evrópu.

Charles varð þrisvar sinnum ítalskur meistari með Juventus.vísir/getty
Efstu tveir á listanum koma báðir frá Wales. Bale verður að gera sér 2. sætið að góðu en að mati Daily Mail er blíði risinn John Charles besti Bretinn sem hefur spilað í Evrópu. Charles lék með Juventus í fimm ár og varð þrisvar sinnum ítalskur meistari með liðinu.

Jafnir í 3. og 4. sæti eru Englendingarnir Kevin Keegan og David Beckham. Keegan lék með Hamburg á árunum 1977-80 en á þeim tíma var hann Gullboltann í tvígang og varð einu sinni þýskur meistari.

Real Madrid keypti Beckham af Manchester United fyrir 25 milljónir punda 2003 og hann lék með liðinu til 2007. Beckham lék svo seinna með AC Milan og Paris Saint-Germain.

Keegan vann Gullboltann tvisvar sem leikmaður Hamburg.vísir/getty
Bestu Bretarnir utan heimalandsins að mati Daily Mail:

1. John Charles (Wales)

2. Gareth Bale (Wales)

3.-4. Kevin Keegan (England)

3.-4. David Beckham (England)

5. Steve McManaman (England)

6. Owen Hargreaves (England)

7. Gary Lineker (England)

8. Laurie Cunningham (England)

9. Chris Waddle (England)

10. Tony Cascarino (Írland)


Tengdar fréttir

Ronaldo: Vítaspyrnukeppni er alltaf lottó

Cristiano Ronaldo, stórstjarna og hetja Real Madrid á vítapunktinum í kvöld, segir að reynslan hafi skipt sköpum í úrslitaleiknum gegn Atlético í kvöld.

Zidane: Þjálfa besta lið í heimi

Zinedie Zidane, stjóri Real Madrid, segist þjálfa besta lið í heimi og er þakklátur fyrir að hafa fengið að spila með Madrídar-liðinu.

Modric: Þessi bikar tilheyrir Real Madrid

Luka Modric, miðjumaður Real Madrid, var stoltur í leikslok eftir sigur Real Madrid í Meistaradeild Evrópu. Hann segir leikurinn hafi verið erfiður vegna rakans.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×