„Dómararnir hræddir þegar þeir sjá stelpur slást“ Tómas Þór Þórðarson skrifar 31. maí 2016 15:30
Áhugavert atvik úr leik Þórs/KA og KR í fjórðu umferð Pepsi-deildar kvenna í fótbolta var til umræðu í Pepsi-mörkum kvenna á Stöð 2 Sport HD í gærkvöldi. Eftir fimmtán mínútna leik fékk Sara Lissy Chontosh, leikmaður KR, gult spjald fyrir að brjóta á Söndru Gutierrez. Gutierrez var óhress með brotið enda nokkuð gróft og ýtti hún hressilega við Contosh en slapp með gult spjald. „Ég næ ekki þessari hegðun. Þetta er alltaf gult spjald, það er alveg öruggt,“ sagði Máni Pétursson, sérfræðingur í Pepsi-mörkum kvenna, um brotið hjá KR-stúlkunni en bætti við: „Samkvæmt öllum reglum er þetta gult spjald líka [á Gutierrez].“ „Fyrirgefðu að ég segi þetta en það er eins og karlmennirnir sem dæmi þessa leiki stundum fari í eitthvað „panic“ þegar þeir sjá stelpur slást.“ „Þegar smá slagsmál brjótast út er eins og þeir séu ekki starfi sínu vaxnir. Við sáum þetta líka í Fylkir-ÍBV þar sem dómarinn stendur stjarfur og horfi á kvennaslagsmál,“ sagði Máni. Svipað atvik kom nefnilega upp í viðureign Fylkis og ÍBV þar sem Fylkiskonan Rut Kristjánsdóttir og Eyjakonan Cloe Lacasse lentu í útistöðum og létu hnefana tala. Meira um það hér. „Þetta á ekki að vera þannig. Þetta er bara brot hvort sem um er að ræða karlmenn eða kvenmenn,“ sagði Rakel Logadóttir. Alla umræðuna má sjá í spilaranum hér að ofan.
Pepsi Max-deild kvenna Mest lesið Danski dómarinn aftur á börum af velli Handbolti Trump fékk gulllykil og sagði tollastríðið auka spennu fyrir HM Fótbolti Björgvin Páll strax kallaður aftur í landsliðið Handbolti Svindlaði á öllum lyfjaprófum Sport „Vorum að passa okkur og hlupum ekki neitt“ Enski boltinn Um orðaskak sitt við LeBron James: „Snerist um son hans“ Körfubolti Tatum lækkaði rostann í Lakers og James meiddist Körfubolti Í beinni: Chelsea - Leicester | Maresca-slagurinn Enski boltinn Óli Óla í beinni úr klefa eftir sigur á Njarðvík: „Fá okkur að éta og bara njóta“ Körfubolti Liðslæknir Barcelona lést óvænt og leik kvöldsins frestað Fótbolti Fleiri fréttir FH sækir liðsstyrk út fyrir landsteinana Trúir á Óla Kristjáns og Jesú Krist Í skýjunum með að hreppa Þórdísi Hrönn Níu mörk þegar KR vann ÍBV QPR vildi Þorra en Fram sagði nei Fylkismenn komust áfram á kostnað Íslandsmeistara Blika Valskonur með fullt hús og markatöluna 15-1 Thomsen mættur aftur í íslenska boltann Pedersen með tvö og Valsmenn í undanúrslit Auðun tekur við Þrótti Vogum „Fjölskyldan spurði hvort ég gæti ekki fundið hlýrra land“ Sveinn Margeir mögulega ekkert með Víkingum í sumar Víðir með Vestmannaeyingum í sumar Daði Berg frá Víkingi til Vestra Víkingar skipta um gír Ísfirðingar fá hávaxinn eistneskan framherja Kjartan Kári verður áfram hjá FH eftir að hafa hafnað Val Magnús Orri tekur við formannsstólnum af Páli Atli Sigurjóns framlengir við KR Yngri bróðir Benoný Breka yfirgefur líka KR FH-ingar æfðu á grasi í febrúar Síðhærði Færeyingurinn snýr aftur norður Kemur meiddur til Víkings en þó á miklu betri stað Kveðst viss um eftirsjá Gylfa: „Hefðum unnið mótið í fyrra með hann“ ÍA fær Baldvin frá Fjölni Útlit fyrir að Kjartan fylli skarð Gylfa hjá Val „Held að fólk sé komið með leið á því að lesa um þessi félagsskipti“ Gylfi orðinn Víkingur Valsmenn settu sex gegn Grindavík Breki Baxter kórónaði endurkomu Eyjamanna Sjá meira